Markvörður FH fékk skráð á sig mark | Dómarinn skoðar vonandi þetta myndband Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. júlí 2016 17:00 Vísir/Samsett mynd
FH-konur skoruðu langþráð mark í síðasta leik sínum í Pepsi-deild kvenna í fótbolta en það dugði þó ekki til sigurs á móti Fylki. Það vakti hinsvegar athygli hver fékk markið skráð á sig hjá dómara leiksins sem var annaðhvort ekki að fylgjast með eða gerði stór mistök þegar hann fór yfir leikskýrsluna. Dómarinn skráði nefnilega þetta mark FH-liðsins á Jeannette J Williams sem er markvörður FH-liðsins eins og sjá má á þessari mynd hér fyrir neðan af staðfestri leikskýrslu leiksins inn á ksi.is.Markið hjá FH-liðinu kom eftir hornspyrnu í uppbótartíma fyrri hálfleiks og náðu Fylkiskonur varla að byrja leikinn áður en flautað var til hálfleiks. Þetta var merkilegt mark enda voru FH-konur þarna ekki búnar að skora í 391 mínútu í Pepsi-deildinni. Þetta var líka fyrsta markið sem hin átján ára gamla Ingibjörg Rún Óladóttir skorar í Pepsi-deildinni en hún var þarna að spila sinn sjötta leik í sumar. FH-liðið er ungt og yngstu stelpurnar hafa séð um að skora mörk liðsins í Pepsi-deildinni í sumar. Ingibjörg Rún Óladóttir er fædd árið 1998 en hinir tveir markaskorarar FH-liðsins í sumar eru fæddar árið 2000 (Guðný Árnadóttir) og 2001 (Karólína Lea Vilhjálmsdóttir). Markið skoraði Ingibjörg Rún með þrumuskalla eftir hornspyrnu og eins og sjá má í myndbandinu af markinu hér fyrir neðan þá er markvörðurinn Jeannette J Williams hvergi sjáanleg enda væntanlega inn í vítateignum hinum megin á vellinum. Það er leiðinlegt að Ingibjörg Rún fái ekki þetta fyrsta mark skráð á sig og við mælum með að dómari leiksins skoði einnig myndbandið hér fyrir neðan og sannfærist um leið um það að þetta mark eigi að vera skráð á Ingibjörgu Rún.Mark FH í leik á móti Fylki í 7. umferð Pepsi-deildar kvenna
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Fleiri fréttir Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Sjá meira