Tók við Þrótti og liðið hefur unnið alla leiki sína síðan Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. júlí 2016 08:00 Nik Chamberlain, nýráðinn þjálfari meistaraflokks Þróttar. Mynd/Þróttur
Þróttur samdi á dögunum við Nik Chamberlain um að taka að sér starf aðalþjálfara meistaraflokks og 3. flokks kvenna í knattspyrnu, en aðalþjálfari liðsins, Ásmundur Vilhelmsson, lét af störfum fyrir nokkrum vikum. Aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna sem fyrr er Rakel Logadóttir, en hún hefur gegnt því starfi frá því síðastliðinn vetur. Þróttarar biðu þó með að tilkynna um nýja þjálfarann þar til rétt fyrir fjórða leik Nik Chamberlain með liðið sem var í gær. Þróttur vann þá stórsigur á Fram. Nýja þjálfarateymið í Laugardalnum fer mjög vel af stað og er nú þegar komið með 12 stig af 12 mögulegum í fyrstu fjórum leikjum sínum. Sigur náðist gegn Hvíta riddaranum í þeirra fyrsta leik saman, 6-2 á heimavelli. Í kjölfarið komu tveir 2-0 sigrar á útivelli, gegn KH og Skínandi. Þróttur vann síðan 5-0 stórsigur á Fram í Laugardalnum í gærkvöldi. „Ég er virkilega spenntur og þakklátur fyrir að hafa fengið þetta tækifæri hjá Þrótti. Við höfum farið vel af stað saman, en eigum þó langt í land með að ná þeim markmiðum sem við höfum í sameiningu sett okkur. Ég finn að stelpurnar eru hungraðar í árangur, enda er komin smávegis hefð fyrir því hérna í Laugardal að eiga lið í fremstu röð," segir Nik Chamberlain, nýráðinn þjálfara meistaraflokks kvenna í knattspyrnu í fréttatilkynningu Þróttara. „Lengd samningsins er yfir fjögur tímabil og færir þess vegna ákveðna ró yfir hópinn og starfið þar. Nú getum við skoðað markmið til langtíma í samhengi við þróun yngri flokka upp á efsta stig meistaraflokks. Yngri stelpurnar þurfa að hafa vissu um að sama heimspeki í þjálfun renni gegnum alla flokka og að grundvallaratriðin, leikstíllinn og nálgunin breytist lítið milli ára. Það er höfuðatriði til að ná stöðugum árangri og byggja starfið upp til langtíma,“ bætti Nik við.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Fleiri fréttir Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Sjá meira