Við höfum raunverulegt val Benjamín Axel Árnason skrifar 22. júní 2016 11:30 Það er gott að hafa val, reyndar höfum við það oftast. Stundum lendum við þó í þvinguðu vali og þurfum að velja eitt til að fyrirbyggja annað verra. Margir horfa þannig á valmöguleikana í komandi forsetakosningum og telja þörf fyrir taktíska kosningu. Framanaf til að koma í veg fyrir framhaldssögu Ólafs Ragnars og síðar ætlaða upprisu Davíðs Oddssonar. Nauðsynlegt sé að fylkja sér um einhvern einn frambjóðanda til að koma í veg fyrir kosningu þeirra þaulsetnu. – En staðreyndir og skoðanakannanir sýna að við höfum raunverulegt val. Skoðanakannanir gefa vísbendingar um að Ástþór, Elísabet, Guðrún, Hildur og Sturla hafi samanlagt 5-7% fylgi. Þær sýna okkur einnig að Davíð Oddsson er pikk fastur í 16-20% fylgi, þrátt fyrir vel smurða og öfluga kosningavél, skipsfarma fjármagns, Morgunblaðið og öll trikkin úr gömlu pólitíkinni. Andri Snær, Guðni Th. og Halla keppa því um þau 73-78% sem skoðanakannanir sýna að baráttan er um. Ef það fylgi skiptist jafn á milli þeirra þriggja væri hvert og eitt þeirra með 24-26%, þe. öll meira fylgi en Davíð Oddsson. – Við höfum því raunverulegt óþvingað val. Mér finnst gott að hafa óþvingað val, geta kosið frambjóðendur eftir verðleikum þeirra, mannkostum, starfsreynslu, frumkvæði, dugnaði, framtíðarsýn og heilindum. Það er áhugavert að bera þessa þætti saman hjá þeim Höllu, Guðna og Andra. , Á vefsíðum þeirra http://halla2016.is, http://gudnith.is/, https://andrisnaer.is/2016/ eru gagnlegar upplýsingar fyrir slíkan samanburð. Látum ekki rætna vef- og fjölmiðlaumfjöllun um listamannalaun og afkastaleysi Andra, viðskiptareynslu og fundarstjórn Höllu eða að elíta Sjálfstæðisflokksins hafi teiknað upp framboð Guðna villa okkur sýn. Látum staðreyndirnar tala sínu máli, skoðum með opnum hug starfsreynslu, frumkvæði og framtíðarsýn þessara þriggja frambjóðenda. - Við höfum raunverulegt val.Ég er búinn að skoða vefsíður þessara þriggja valkosta mjög vandlega, og hef reynt af sanngirni að bera saman starfsreynslu, vinnusemi og framtíðarsýn þeirra. Sagnfræðingurinn Ég dáist að söguþekkingu Guðna Th. og virði nær samfellda 27 ára náms- og starfsreynslu hans innan þykkra veggja háskóla beggja vegna Atlandsála. Hófleg kennsluskylda hans hin síðari ár hefur jafnframt veitt honum tækifæri til að skrifa nokkrar áhugaverðar sagnfræðibækur um forseta, pólitík og þorskastríð. Það eru fróðlegar bækur og skemmtilegar aflestrar fyrir þá sem hafa áhuga á sagnfræði. Það truflar mig þó hvað Guðna er oft tvísaga í ræðu og riti. Ég hef enn ekki rekist á neitt sem sýnir fram á stjórnunarreynslu eða frumkvöðlastarf hans og eiginlega fleira sem lýsir fortíðarsýn en heillandi framtíðarsýn. En Guðni er vissulega af góðu fólki kominn og gleymum því ekki að Patti bróðir hans skoraði 634 mörk fyrir íslenska landsliðið í handbolta. Rithöfundurinn Mér finnst lífshlaup rithöfundarins og læknissonarins Andra Snæs einnig áhugavert, ég átti mér sjálfur þann draum á menntaskólaárum að verða svona „miðbæjar-boheim“, skrifa eina og eina bók, jafnvel ljóðabók, tala við fólk, fara á tónleika, sitja á kaffihúsum og tala um mikilvæg málefni við fólk sem vantaði málstað að trúa á. Þessi menntaskóladraumur minn rjátlaðist þó af mér þegar börnin fæddust og heimurinn var stærri, já og þegar daglegt brauðstrit hvunndagsins varð að nauðsynlegri leið til að greiða reikninga mánaðarins. – Andri Snær lifir þennan menntaskóladraum minn, það þarf útsjónasemi til að fjármagna slíkt draumaland. Vel gert Andri, þú hefur vissulega talað fyrir mikilvægan málstað, því náttúran og náttúruvernd eru brýn málefni sem varða okkur öll. En fjölbreyttri starfsreynslu, reynslu af stjórnun eða að taka á erfiðum málum er ekki fyrir að fara. Frumkvöðullinn Frumkvöðullinn Halla lauk háskólagráðu og meistaragráðu frá virtum háskólum í USA með hæstu einkunn og hlaut verðlaun fyrir afburða námsárangur. Stórfyrirtækin M&M/Mars veittu þessari íslensku stelpu af Kársnesinu athygli og réðu hana til stjórnunarstarfa strax að námi loknu. 27 ára gömul var hún orðin mannauðsstjóri Pepsi Cola og leiddi þar umbreytingar og innleiðingu gilda í yfir 300 þúsunda manna fyrirtæki, en hugurinn stefndi heim, - heim til Íslands að gera gagn. Fyrst tók hún að sér mannauðsstjórnun hjá Íslenska útvarpsfélaginu og svo var hún kölluð til í að byggja upp Háskólann í Reykjavík. Það dugði henni ekki að byggja upp stjórnendanám háskólans, hún vildi gera meira gagn. Konum og ungum stúkum var boðið að taka þátt í verkefninu „Auður í krafti kvenna“ svona samhliða öðrum verkefnum Höllu við HR. Þarna hlutu hundruð kvenna og tugir ungra stúlkna fræðslu og þjálfun í leiðtogafærni, frumkvöðlastarfi og fjármálum. Mér sýnist þetta stórkostlega verkefni ekki einungis hafa verið vitundarvakning í hugum þessara ungu kvenna, hugsjón Höllu um jafnrétti allra var að markast og mótast, ekki bara jafnrétti kynja, heldur einnig jafnrétti þeirra sem verr eru settir, þeirra sem komnir eru á efri ár, þeirra sem bera minna úr býtum og þeirra sem líður ekki vel, hana langaði að gera meira gagn. Hún hélt í doktorsnám við Cranfield háskóla í Englandi til að rannsaka þau fræði betur, en hún kom aftur heim, - heim til Íslands að gera gagn. Hún vildi innleiða ný gildi og samfélagshugsun í íslenskt viðskiptalíf og réði sig fyrst kvenna sem framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, en hlaut ekki hljómgrunn fyrir sínar hugsjónir og sagði upp eftir níu mánuði í starfi. Halla skoraði næst á fjármálaheiminn, vopnuð heiðarleika, kvenlægum gildum og sýn á að taka meiri samfélagslega ábyrgð á tímum sem enginn þorði að segja neitt. Hún og hennar samstarfsfólk sýndi að hugmyndafræðin virkaði og stýrðu nýstofnuðum fjárfestingabanka í gegnum efnahagshrun án þess að nokkur tapaði krónu. Halla hefur leitt og tekið þátt í stórum umbótaverkefnum á sviði jafnréttis og samfélagsbreytinga, jafn innan lands sem utan. Hér heima var hún í Mauraþúfunni sem stóð að Þjóðfundinum 2009 og stóð fyrir jafnréttisráðstefnunni WE2015. Erlendis hefur hún haldið fyrirlestra og tekið þátt í umræðum um samfélagsþróun um allan heim, meðal annars hjá TED, Clinton Global Initiative, Skoll World Forum og þekktum háskólum á borð við IESE og Rockefeller. Hún hefur komið fram í fjölmörgum virtum alþjóðlegum fjölmiðlum sem málsvari jafnréttis og nauðsynlegra umbreytinga í samfélaginu og hún hefur búið og starfað í Bandaríkjunum, Bretlandi og á Norðurlöndum. Reynsla hennar og tengslanet á erlendri grund er magnað og virkilega verðmætt.Njótum þess að hafa raunverulegt val Það er augljóst að Halla Tómasdóttir stendur uppúr í þessum samanburði frambjóðendanna þriggja. Menntun hennar, starfsreynsla, frumkvöðlastarf, framtíðarsýn og alþjóðleg reynsla ber af við lestur kynninga frambjóðendanna. Við höfum raunverulegt val, njótum þess og nýtum vel. Mætum á kjörstað og kjósum dugnað, framsýni og framtíð umfram fortíð. – Kjósum Höllu Tómasdóttur sem forseta Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Forsetakosningar 2016 Skoðun Mest lesið Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson Skoðun Segðu bara nei við sölumanninn Egill Gautason Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Sagan endurtekur sig Daði Már Kristófersson Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga skrifar Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson skrifar Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Segðu bara nei við sölumanninn Egill Gautason skrifar Skoðun Sagan endurtekur sig Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Í krónuklóm Jón Bragi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Landsvirkjun, „Ísland allt“ og óvissan um ESB-aðild Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Breytt heimsmynd Sigurgeir Jónasson skrifar Skoðun Komin með nóg af umræðu um ESB? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Við höfum engu að tapa – þess vegna segi ég já Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Nýr samfélagssáttmáli: Lífeyrissjóðir, bankakerfi og afnám verðtryggingar — raunhæf leið til stöðugleika í kjarasamningum og styrkingar lánshæfismats Íslands Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ísland og evran Höskuldur Einarsson skrifar Skoðun Gosi og gylliboðin Kristín Thoroddsen skrifar Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Fólkið eða peningarnir? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Fullveldi hvað Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar
Skoðun Nýr samfélagssáttmáli: Lífeyrissjóðir, bankakerfi og afnám verðtryggingar — raunhæf leið til stöðugleika í kjarasamningum og styrkingar lánshæfismats Íslands Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar