Veigar Páll: Lofa þér því að það er ekkert panik hjá Stjörnumönnum Árni Jóhannsson á Valsvellinum skrifar 5. júní 2016 19:30 Veigar Páll er kominn með þrjú mörk í Pepsi-deildinni. vísir/anton „
Í fyrsta lagi hefðum við getað mætt til leiks, fyrsti hálftíminn hjá okkur var skelfilegur, við vorum varla inn á vellinum“, sagði Veigar Páll Gunnarsson, fyrirliði Stjörnumanna, ómyrkur í máli eftir tap sinna manna á móti Valsmönnum á Vodafone vellinum í dag. „Síðan vorum við betri seinasta korterið í fyrri hálfleik og seinni hálfleik þurftum við svolítið að sækja á þá. Þeir pökkuðu náttúrulega í vörn og voru þéttir fyrir en ég verð að segja að fyrsti hálftíminn hafi eyðilagt fyrir okkur.“ Veigar var því næst spurður út í færanýtinguna hjá Stjörnumönnum í leiknum en markvörður Valsmanna var mjög góður í dag og varði það sem kom á markið hjá Valsmönnum en í seinasta leik hittu Stjörnumenn fyrir markvörð sem var mjög góður. „Hann var mjög góður í markinu í dag, varði þau skot sem komu á markið. Tvisvar til þrisvar varði hann allavega mjög vel. Við þurfum bara að fara að setja boltann í netið það er málið.“ Fyrirliðinn var að lokum beðinn um að leggja mat á framhaldið í deildinni en Stjörnumenn hafa ekki unni leik í seinustu fjórum umferðum. „Við þurfum að klára bikarinn í næstu viku en svo er dálítið langt í næsta leik í deildinni. Ég get samt alveg lofað þér því að það er ekkert panikk hjá Stjörnumönnum eða svoleiðis, fyrir utan fyrsta hálftímann þá vorum við alveg fínir í þessum leik. Við tökum ágætt frí og söfnum kröftum held ég bara.“
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Dóttir Schumachers rýfur þögnina eftir þrettán ár Formúla 1 Trump styður við bakið á Tiger Golf Lét ekki viðbeinsbrot stoppa sig og fagnaði í fatla Fótbolti Í fyrsta sinn á þessari öld sem enginn fellur á lyfjaprófi Sport Dagskráin í dag: Átta liða úrslit FA bikarsins og úrslitakeppnir í körfuboltanum Sport Besta-spáin 2026: Vindar breytinga Íslenski boltinn Halda áfram að deila: Van Veen er alveg sama hvað Littler finnst Sport Verða allir með gullmerki til að sýna liðsfélaga sínum stuðning Fótbolti Vafasamur vítaspyrnudómur stöðvaði ekki toppliðið Enski boltinn Glódís skallaði sig inn í lið umferðarinnar Fótbolti Fleiri fréttir „Finnst vanta framherja“ Besta-spáin 2026: Vindar breytinga Ægir Jarl mættur til Fram Bikarævintýri Davíðs Smára halda áfram Afturelding áfram í sextán liða úrslit bikarsins Uppgjörið: Breiðablik - FH 3-1 | Breiðablik meistarar meistaranna „Ofboðslega stórir skór að fylla“ Besta-spáin 2026: Vilja segja upp áskriftinni Sérfræðingarnir svara: Telja að ungu KR-ingarnir slái í gegn Skoruðu í Reykjavík og unnu í Hafnarfirði Meistarakeppni kvenna í fótbolta aflýst vegna veðurs Flautað af í Árbæ vegna snjókomu Breiðablik - FH | Bikar í boði í meistarakeppninni „Ég er spenntur fyrir Þórsurum“ Besta-spáin 2026: Mæta með læti Kane ver mark Blika Í toppstandi og stefnir á alla titla Kom að luktum dyrum hjá Óskari: „Hef ekki tíma í þetta“ „Á mjög erfitt með að sjá þetta vera jafn gott og síðasta sumar“ Segja hann koma úr efstu deild í Litháen en hann féll úr B-deildinni Besta-spáin 2026: Ætla blása hrakspárnar aftur á haf út Sérfræðingarnir svara: Hver hefur mest að sanna í sumar? Hollenskur varnarmaður gengur í raðir Vals „Vil sjá Keflvíkinga koma sér á þann stað sem þeir voru á“ Besta-spáin 2026: Enn á skilorði Davíð Smári hóf sína eigin bikarvörn á sigri Upplifunar- og gæðastjórinn segir mikilvægt að rýna í xF Sérfræðingarnir svara: Spenntastir fyrir nýju Skagamönnunum og strákunum fyrir norðan Draugamarkið í Eyjum: Kastaði medalíunni út í hraun „Þetta er leikur um bikar og við stefnum á þá alla“ Sjá meira