Jóhann Árni aftur heim í Njarðvík til að spila fyrir besta vininn sinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. júní 2016 12:13 Jóhann Árni Ólafsson og Daníel Guðni Guðmundsson sjást hér sitthvorum megin við fyrirliðann Þorleif Ólafsson þegar Grindavík varð Íslandsmeistari 2013. Vísir/Daníel
Jóhann Árni Ólafsson spilar ekki með Grindavík í Dominos-deild karla í körfubolta á næstu leiktíð því hann hefur ákveðið að snúa heim til Njarðvíkur. Víkurfréttir segja frá því í dag að Jóhann Árni hafi tekið þá ákvörðun að yfirgefa Grindavík. Jóhann Árni Ólafsson hefur spilað með Grindavíkurliðinu frá 2011 og varð meðal annars tvisvar sinnum Íslandsmeistari með liðinu. „Þetta var einhver löngun að fara á æskuslóðir í Njarðvík. Ég ætlaði alltaf að enda ferilinn í Njarðvík," sagði Jóhann Árni Ólafsson í viðtalinu við Víkurfréttir. Jóhann Árni Ólafsson glímdi við meiðsli á síðasta tímabili en var með 10.8 stig, 5,4 fráköst og 3,3 stoðasendingar að meðaltali á 30,3 mínútum í leik. Jóhann Árni spilaði síðast með Njarðvíkingum tímabilið 2010 til 2011 og var þá með 12,5 stig í leik. Eins og staðan er núna þá mun enginn leikmaður úr því liði spila með Njarðvíkingum næsta vetur. Jóhann Árni mun áfram búa í Grindavík og starfa þar en hann mun áfram þjálfa yngri flokka hjá Grindavík auk þess að vinna með unglingum í grunnskólanum. Jóhann Árni mun nú spila fyrir einn sinn besta vin því Daníel Guðni Guðmundsson er nýr þjálfari Njarðvíkinga. Daníel Guðni tekur við liðinu af Friðriki Inga Rúnarssyni. „Vinátta okkar er slík að við getum sagt hvað sem er og virt skoðanir hvors annars. Við munum reyna að finna leiðir til þess að vinna körfuboltaleiki og þá er vináttan ekkert að þvælast fyrir okkur," sagði Jóhann Árni í umræddu viðtali við Víkurfréttir.
Dominos-deild karla Mest lesið PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti „Betra liðið tapaði” Fótbolti Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira