Máni: Spenntur að sjá hvernig FH bregst við því að lenda undir | Myndband Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 26. maí 2016 13:27
Nýliðar FH hafa komið liða mest á óvart það sem af er tímabili í Pepsi-deild kvenna. FH-ingar eru í 2. sæti deildarinnar með sjö stig, líkt og topplið Stjörnunnar sem er með betri markatölu. Fimleikafélagið er búið að vinna útisigra á ÍA og KR og gerði markalaust jafntefli við Íslandsmeistara Breiðabliks í Kaplakrika. Og það sem meira er, þá er liðið ekki enn búið að fá á sig mark í sumar.Sjá einnig: Sjáðu öll mörkin úr 3. umferð Pepsi-deildar kvenna FH var til umræðu í Pepsi-mörkum kvenna í gærkvöldi. „FH-liðið verst gríðarlega vel og þær vinna svo vel fyrir hvora aðra,“ sagði Þorkell Máni Pétursson. Hann benti þó á að mörkin tvö sem FH hefur skorað í sumar hafi verið afar ódýr og komið eftir mistök mótherjans. Máni segir áhugavert að sjá hvernig FH-ingar bregðast við þegar andstæðingnum tekst loks að koma boltanum framhjá Jeannette J. Williams í marki Hafnfirðinga. „Maður bíður spenntur eftir að sjá hvað gerist ef FH fær á sig mark og þarf að fara að sækja sigur og fara fram á völlinn,“ sagði Máni.Sjá einnig: Fjórtán ára tryggði FH sigur á ÍA | Sjáðu markið Stelpur fæddar 2000 og 2001 hafa skorað mörkin tvö sem FH hefur gert í sumar. Helena Ólafsdóttir, stjórnandi Pepsi-markanna, vill sjá meira frá framherjanum Aldísi Köru Lúðvíksdóttur sem varð Íslandsmeistari með Breiðabliki í fyrra. „Svo er einn leikmaður sem maður vill sjá fara í gang. Það er Aldís Kara. Hún getur alveg skorað upp á sitt einsdæmi,“ sagði Helena um Aldísi sem hefur skorað 70 mörk í 107 leikjum í deild og bikar hér á landi.Innslagið í heild sinni má sjá hér að ofan.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti „Ég er oftast mjög rólegur“ Körfubolti „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ Fótbolti „Ef þig vantar stoðsendingu þá bara gefur þú á hann“ Sport Fleiri fréttir „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Sjá meira