Gott að tapa leiknum í kvöld? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. maí 2016 15:30 Harpa Þorsteinsdóttir og félagar í Stjörnunni unnu Meistarakeppni kvenna í fyrra. Vísir/Stefán
Það styttist í það að Pepsi-deild kvenna fari af stað og í kvöld fer fram lokaleikur undirbúningstímabilsins þegar Íslands- og bikarmeistararnir mætast í Meistarakeppni kvenna. Leikur Íslandsmeistara Breiðabliks og bikarmeistara Stjörnunnar hefst klukkan 19.15 á Samsung vellinum í Garðabæ og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2. Liðin hafa orðið Íslandsmeistarar undanfarin þrjú ár, Stjarnan 2013 og 2014 en Breiðablik í fyrra, og háðu einvígi um Íslandsmeistaratitilinn síðasta sumar. Blikastúlkur unnu á endanum sannfærandi sigur en Stjörnuliðið vann bikarinn annað árið í röð eftir að hafa meðal annars slegið Breiðablik út í sextán liða úrslitum keppninnar. Það er síðan önnur saga hvort það sé gott að vinna Meistarakeppnina. Þetta er þriðja árið í röð sem Stjarnan og Breiðablik mætast í þessum árlega leik og undanfarin tvö ár hefur tapliðið haft betur í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn. Þetta nær reyndar einu ári lengra aftur því Stjarnan tapaði líka í Meistarakeppninni vorið 2013 en fagnaði Íslandsmeistaratitlinum um haustið. Stjörnukonur hafa unnið þrjá Íslandsmeistaratitla á síðustu fimm árum en einu árin sem stóri titilinn hefur ekki komið í hús (2012 og 2015) voru einmitt árin sem þær komu inn í Íslandsmótið sem meistarar meistaranna. Blikar hafa heldur ekki unnið Íslandsmeistaratitilinn í síðustu fjögur skipti sem Blikakonur hafa unnið Meistarakeppnina fyrir mót eða árin 1998, 2003, 2006 og 2014. Síðasta liðið til að vinna bæði Íslandsmeistaratitilinn og Meistarakeppnina voru Valskonur sumarið 2010 en þær voru þá að ná þeirri tvennu fjögur ár í röð. Valskonur unnu hinsvegar ekki titilinn þegar komu síðast inn í mótið sem meistarar meistaranna en það var sumarið 2011.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti „Ég er oftast mjög rólegur“ Körfubolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Körfubolti Fleiri fréttir Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Sjá meira