Fyrsta sópið í átta ár? Tómas Þór Þórðarson skrifar 25. apríl 2016 12:30 Haukur Óskarsson og Darri Hilmarsson mætast í kvöld. vísir/anton brink
KR og Haukar mætast þriðja sinni í lokaúrslitum Dominos-deildar karla í körfubolta í DHL-höllinni í vesturbæ Reykjavíkur í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 19.15 á Stöð 2 Sport HD en upphitun Dominos-Körfuboltakvölds hefst klukkan 18.30. Vísir verður eins og alltaf með beina textalýsingu frá leiknum. KR er 2-0 yfir í einvíginu og getur unnið sjötta Íslandsmeistaratitilinn á síðustu tíu tímabilum með sigri í kvöld. Það sem meira er getur KR loksins fagnað aftur á heimavelli en það hefur fagnað síðustu þremur Íslandsmeistaratitlum á útivelli eftir 3-1 sigra árin 2011, 2014 og 2015. Síðast fagnaði KR Íslandsmeistaratitlinum á heimavelli árið 2009 eftir sögulegan oddaleik gegn Grindavík í einum sögulegasta körfuboltaleik allra tíma á Íslandi. KR hefur sjö sinnum orðið Íslandsmeistari eftir úrslitakeppni frá því hún var tekin til notkunnar árið 1984. Einu sinni hefur KR sópað andstæðingum sínum en það var fyrir 26 árum þegar KR vann Keflavík, 3-0, í lokaúrslitum 1990. Haukar geta í kvöld orðið fyrsta liðið sem fær sópinn í lokaúrslitum í átta ár eða síðan Keflavík pakkaði Snæfelli saman, 3-0, í lokaúrslitunum 2008. Keflavík lenti 2-0 undir í undanúrslitum gegn ÍR en vann svo fimm leiki í röð og stóð uppi sem Íslandsmeistari. Haukar hafa áður fengið sópinn og það tvisvar sinnum. Þeir töpuðu 2-0 fyrir Njarðvík í lokaúrslitum 1986 og 3-0 fyrir Keflavík árið 1993. Hafnafjarðarliðið er nú í fyrsta sinn í lokaúrslitum í átta liða úrslitakeppni.
Dominos-deild karla Mest lesið Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Messi allt í öllu þegar Argentína fór í úrslitaleikinn Fótbolti Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti Bónorð strax eftir leik í Garðabæ Íslenski boltinn „Dapurlegt tímabil í sögu ríkis okkar“ Fótbolti Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti „Hann var farinn að spyrja hvenær við ætluðum að flytja til Íslands“ Íslenski boltinn Tvenna Daníels tryggði Víkingi meira en hundrað milljónir Fótbolti „Stjörnuhrap“ í frönsku miðlunum Fótbolti Fleiri fréttir Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Sjá meira