Haukarnir geta fært bæði félaginu og þjálfaranum góða afmælisgjöf í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. apríl 2016 16:30 Ívar Ásgrímsson. Vísir/Ernir
Haukar eiga möguleika á því að tryggja sér sæti í lokaúrslitum Domino´s-deildar karla í körfubolta í kvöld með sigri á Stólunum í Síkinu á Sauðárkróki. Það eru liðnir meira en tveir áratugar síðan að Hafnarfjarðarliðið spilaði um Íslandsmeistaratitilinn í karlakörfunni og því hefur biðin verið löng hjá Haukum. Haukar geta með sigri í kvöld fært félaginu flotta afmælisgjöf í tilefni af 85 ára afmæli Hauka en félagið var stofnað 12. apríl 1931 og heldur því upp á afmæli sitt í dag. Ívar Ásgrímsson, þjálfari Haukaliðsins, átti einnig afmæli í gær, varð þá 51 árs, og sigur í kvöld yrði því í raun tvöföld afmælisgjöf. Þetta yrði í fyrsta sinn sem Ívar kæmi karlaliði í lokaúrslitin en Haukarnir sátu eftir í undanúrslitunum undir hans stjórn bæði 2000 og 2015. Ívar fór tvisvar sinnum með kvennalið ÍS í lokaúrslit á sínum tíma en gæti nú komist í hóp þeirra þjálfara sem hafa farið með bæði kynin í úrslitaeinvígið um Íslandsmeistaratitilinn. Haukar hafa ekki komist í lokaúrslitin í 23 ár (1993) og þeir unnu Íslandsmeistaratitilinn í fyrsta og eina skiptið í karlaflokki fyrir 28 árum (1988). Ívar var leikmaður með Haukum þegar titilinn vannst í framlengdum oddaleik í Njarðvík 19. apríl 1988. Karlalið Hauka hefur alls komist fjórum sinnum í úrslitaeinvígið um Íslandsmeistaratitilinn en liðið var þar einnig 1985 og 1986 þar sem liðið tapaði á móti Njarðvík í bæði skiptin. Haukastelpurnar gerðu sitt í gærkvöldi með því að tryggja sér sæti í lokaúrslit kvenna og félagið hefur þegar fengið góða afmælisgjöf í tilefni af 85 ára afmælinu hvernig sem fer á Króknum í kvöld.
Dominos-deild karla Mest lesið PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti „Betra liðið tapaði” Fótbolti Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira