Haukur: Okkur er skítsama hvað er sagt um okkur Tómas Þór Þórðarson á Ásvöllum skrifar 3. apríl 2016 21:56 Haukur Óskarsson í leiknum í kvöld. Vísir/Ernir "
Við erum með mjög gott skotlið. Ef við fáum opin skot þá verðum við að skjóta," sagði Haukur Óskarsson, leikmaður Hauka, sigurreifur við Vísi eftir sigur á Tindastól í kvöld í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Domino´s deildar karla í körfubolta. Haukur skaut og skaut eins og aðrir Haukar í fyrri hálfleik en hitti sama og ekkert. Hann bætti sig heldur betur í seinni hálfleik eins og allt liðið. "Þetta er leikur í úrslitakeppni og varnarleikurinn góður. Það er mikið undir þannig þá er ekkert jafn mikið að fara ofan í og til dæmis í deildarkeppninni. Nýtingin verður aldrei jafn góð þannig við verðum bara að halda áfram," sagði Haukur, en í kvöld var það vörnin sem skilaði sigrinum. Bestu leikmenn Tindatóls komut ekki yfir 10 stig en stigahæstur var Helgi Rafn Viggósson með 18. "Við erum með virkilega gott varnarlið og þegar við spilum svona vörn þá getum við stoppað þá alla. Helgi er topp leikmaður en það verður einhver að skora fyrir þá," sagði Haukur.Sjá einnig:Umfjöllun, viðtöl og myndir: Haukar - Tindastóll 73-61 | Haukar vörðu heimavöllinn "Við leggjum auðvitað mikla áherslu á að stöðva útlendingana þeirra og svona þannig Helgi fékk kannski aðeins meira pláss en hann hefði átt að fá. En það verður einhver að skora eins og ég segi." Haukur kallar eftir meiri virðingu þegar talað er um Haukaliðið sem hefur aðeins tapað einum leik síðustu mánuði. "Þegar við vorum að spila á móti Þór var verið að kvarta yfir útlendingnum okkar og eitthvað svoleiðis en það er aldrei sagt bara að Haukar voru betra liðið," sagði Haukur. "Okkur er skítsama svo lengi sem við vinnum. Við erum búnir að vinna tólf af síðustu þrettán leikjum þannig okkur er alveg sama hvað er sagt um okkur á meðan við höldum áfram að vinna leiki," sagði Haukur Óskarsson.
Dominos-deild karla Mest lesið PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti Fleiri fréttir Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Sjá meira