Njarðvíkingar hafa unnið og tapað á víxl í 17 leikjum í röð í úrslitakeppninni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. mars 2016 17:26 Haukur Helgi Pálsson verður mikilvægur í kvöld. Vísir/Ernir
Stjarnan og Njarðvík spila í kvöld hreinan úrslitaleik um sæti í undanúrslitum Domino´s deildar karla í körfubolta en leikurinn fer fram á heimavelli Stjörnunnar í Ásgarði og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. Ef marka má gengi Njarðvíkinga í úrslitakeppninni undanfarin þrjú ár þá eru þeir að fara að vinna oddaleikinn í Garðabæ í kvöld og tryggja sér með því undanúrslitaeinvígi á móti Íslandsmeisturum KR. Njarðvíkingar hafa nefnilega unnið og tapað á víxl í öllum leikjum sínum í úrslitakeppni frá og með vorinu 2014. Þeir töpuðu síðasta leik í Ljónagryfjunni í Njarðvík og ættu því að fagna sigri í kvöld. Njarðvík tapaði tveimur leikjum í röð í einvígi sínu á móti Grindavík í átta liða úrslitum 2014. Njarðvík vann fjórða leikinn og hefur síðan hvorki tapað tveimur leikjum í röð eða unnið tvo leiki í röð í úrslitakeppninni. Þetta er fjórða einvígi Njarðvíkinga í röð í úrslitakeppninni sem endar með oddaleik en liðið vann Stjörnuna í oddaleik í fyrra en tapaði fyrir KR í undanúrslitum 2015 og á móti Grindavík í átta liða úrslitum 2014.Síðustu sautján leikir Njarðvíkur í úrslitakeppninni:Undanúrslit 2014 Leikur 3: 89-73 tap fyrir Grindavík Leikur 4: 77-68 sigur á Grindavík Leikur 5: 120-95 tap fyrir Grindavík8 liða úrslit 2015 Leikur 1: 88-82 sigur á Stjörnunni (Framlengt) Leikur 2: 89-86 tap fyrir Stjörnunni Leikur 3: 92-86 sigur á Stjörnunni Leikur 4: 96-94 tap fyrir Stjörnunni Leikur 5: 92-73 sigur á StjörnunniUndanúrslit 2015 Leikur 1: 79-62 tap fyrir KR Leikur 2: 85-84 sigur á KR Leikur 3: 83-75 tap fyrir KR Leikur 4: 97-81 sigur á KR Leikur 5: 102-94 tap fyrir KR (Tvíframlengt)8 liða úrslit 2016 Leikur 1: 65-62 sigur á Stjörnunni Leikur 2: 82-70 tap fyrir Stjörnunni Leikur 3: 73-68 sigur á Stjörnunni Leikur 4: 83-68 tap fyrir Stjörnunni
Dominos-deild karla Mest lesið Sagt að hann spili ekki aftur meðan Craig er með liðið Körfubolti Kylfusveinninn græðir meiri pening en meðalkylfingurinn á PGA Golf Sjúkar kýr sveigja leiðina á Tour de France Sport Frá sólinni í Tampa yfir í Bestu deild kvenna á Íslandi Íslenski boltinn Ekki gild afsökun að hafa drukkið teið hennar mömmu sinnar Sport Chicharito biðst afsökunar á karlrembunni Fótbolti Miðarnir langdýrastir hjá Fulham Enski boltinn Sænskur landsliðsmaður vill verða Rússi Sport Gagnrýnd af forsetanum fyrir að vilja sofa hjá strákunum á EM Sport Gyökeres á leið í læknisskoðun og fær númerið hans Henry Enski boltinn Fleiri fréttir Sagt að hann spili ekki aftur meðan Craig er með liðið Stólarnir styrkja íslenska kjarnann með Geks Mario og Jaka í æfingahópnum fyrir EM Ásakaði LeBron um steranotkun í gríni Þreyttur á fallbaráttu og furðulegum ákvörðunum Sutton snýr aftur á Krókinn Svona er riðill Íslands í undankeppni EM Daðraði við Dallas áður en hann skrifaði undir hjá Lakers á nýjan leik Frá Skagafirði á Akranes Paul ætlar að klára ferilinn hjá Clippers Gömul Boston Celtics stjarna semur við Los Angeles Lakers Þjóðverjar sendu íslensku strákana niður í B-deildina Fyrsta konan til að þjálfa karlalið í Brasilíu „Borgið okkur það sem þið skuldið okkur“ Strákarnir tryggðu sér úrslitaleik um sæti í A-deild EM með stórsigri Vill eyða draugasögunni um að Grindavík spili ekki í Grindavík í vetur Slapp snemma úr sjö ára banni og samdi strax við Skagamenn Ofurstjarnan Caitlin Clark ekki með í Stjörnuleiknum Hörður tekur við starfi Arnars Guðjóns hjá KKÍ Fær átta milljarða frá tveimur félögum á tímabili þar sem hann spilar ekki leik Bjóða dómurum í WNBA ókeypis LASIK aðgerðir Hentu frá sér leiknum með hörmungarbyrjun á seinni Körfuboltakvöld í Boston: Nablinn tók viðtal við Ice Cube og sættist við Pargo Caitlin Clark aftur meidd og vandaði dómaranum ekki kveðjurnar Bradley Beal til Clippers Íslensku strákarnir töpuðu stórt í sextán liða úrslitunum Stólarnir verða með í Evrópukeppninni í vetur „Getum ekki beðið eftir að sjá þig gera kraftaverk“ Yfirgefur Aþenu og semur við nýliðana Elvar Már til Póllands Sjá meira