Þetta er í boði fyrir Domino´s liðin í lokaumferðinni í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. mars 2016 16:00 Valur Orri Valsson verður í sviðsljósinu í Garðabænum í kvöld. Vísir/Vilhelm
Lokaumferð Domino´s deildar karla fer fram í kvöld og þrátt fyrir að deildarmeistaratitilinn og fallsætin séu klár þá geta nokkur lið bætt stöðu sína í leikjum kvöldsins. Karfan.is hefur tekið saman greinagott yfirlit yfir hvað er í boði fyrir liðin tólf í 22. og síðustu umferð deildarkeppninnar. Sjö lið hafa þegar tryggt sér sæti í úrslitakeppninni og þá er ljóst að KR, Keflavík, Stjarnan og Haukar verða með heimavallarrétt í átta liða úrslitum úrslitakeppninnar. Hér fyrir neðan má sjá samantekt karfan.is um hvaða sæti eru í boði fyrir liðin í kvöld.Hvað er í boði í lokaumferð Domino´s deildar karla:KR er orðið deildarmeistari. 1. sæti.Keflavík er með 30 stig og mætir Stjörnunni í kvöld í hreinum úrslitaleik um annað sætið. Vinni Keflavíkavíkur verður það í öðru sæti en ef Keflvíkingar tapa þá verða þeir í þriðja sæti. 2. til 3. sæti.Stjarnan er með 30 stig og mætir Keflavík í kvöld í hreinum úrslitaleik um annað sætið. Vinni Stjarnan verða Garðbæingar í öðru sæti en ef þeir tapa leiknum þá verða þeir í þriðja sætinu. 2. til 3. sæti.Haukar eru með 28 stig og mæta Hetti á heimavelli í kvöld.. Sama hvernig fer hjá þeim þá enda Haukarnir í fjórða sætinu. 4. sæti.Þór Þ. er með 26 stig og mætir Snæfell í kvöld. Vinni Þór eða að þeir tapa leiknum og Tindastóll tapar sínum leik, þá enda Þórsarar í 5. sæti. Ef þeir tapa leiknum og Tindastóll vinnur þá endar Þórsliðið í 6. sæti. 5. til 6. sæti.Tindastóll er með 26 stig og mætir FSu á útivelli í kvöld. Vinni Tindastóll og Þór tapar þá endar Tindastóll í 5. sæti en ef Tindastóll tapar eða að bæði lið vinna þá endar Tindastóll í 6. sætinu. 5. til 6. sæti.Njarðvík er með 22 stig og mætir Grindavík í kvöld. Sama hvernig sá leikur fer þá endar Njarðvík í 7. sæti. 7. sæti.Snæfell er með 16 stig og mætir Þór Þ. í kvöld. Ef Snæfell vinnur leikinn eða að þeir tapa og Grindavík tapar líka þá er Snæfell númer 8. Ef hinsvegar Snæfell tapar sínum leik og Grindavík vinnur þá er Snæfell í sæti númer 9. 8. til 9. sæti.Grindavík er með 16 stig og mætir Njarðvík í kvöld. Ef Grindavík vinnur og Snæfell tapar þá er Grindavík í 8. sæti. Ef Grindavík tapar eða bæði lið vinna þá er Grindavík númer 9. 8. til 9. sæti.ÍR er með 12 stig og endar í 10. sæti. 10. sætiHöttur og FSu eru bæði fallin úr deildinni. Höttur þarf að vinna og FSu að tapa til þess að Höttur komist upp úr neðsta sæti deildarinnar. 11. og 12. sæti
Dominos-deild karla Mest lesið „Þá leið mér frekar illa eftir leik“ Fótbolti Fyrrum leikmaður Liverpool að ganga í raðir Stjörnunnar Íslenski boltinn Kaupa Delap og eru í viðræðum við Sancho Enski boltinn Sér á eftir Earps en vill ekki ræða hvað fór þeirra á milli Fótbolti Þeir bestu (1. sæti): Afrekaði allt Íslenski boltinn Eitt Íslandsmet og þrjú gullverðlaun Sport „Eitthvað sem er í vinnslu og gerist kannski“ Fótbolti Uppgjörið: Stjarnan - KR 4-2 | Frábær byrjun Stjörnunnar skildi KR-inga eftir í reyk Íslenski boltinn Fulltrúi Íslands í áfalli eftir aðalfund sem fór í háaloft: „Eins og eldur í púðurtunnu“ Sport Gamla brýnið Allegri tekur við AC Milan Fótbolti Fleiri fréttir Næstyngsta liðið fyrst til að rústa fjórum leikjum á leið í úrslitaeinvígið Átti einstakan leik og biðinni frá aldamótum að ljúka Grindavík sækir besta leikmann Hamars/Þórs Dani Rodriguez búin að semja við Njarðvík Daníel Guðni tekur við karlaliði Keflavíkur Náfrændurnir bestir en Thunder þarf bara einn sigur enn Hörður Axel tekur við Keflavík á nýjan leik „Frábær leikmaður en Jokic átti að vinna þessi verðlaun“ „Ódrepandi“ Knicks í sögubækurnar Emilie Hesseldal í Grindavík Úlfarnir bitu frá sér og unnu 42 stiga sigur Elsti leikmaðurinn til að fá MVP atkvæði Stórleikur Martins dugði ekki til og Alba Berlin úr leik Siakam sjóðheitur þegar Pacers komst í 2-0 „Sannleikurinn“ Edwards þarf að skjóta sópinn úr höndum OKC Íslandsmeistarinn Ægir Þór: „Þetta er bara algjör þvæla“ Sylvía snýr aftur með nýliðunum: „Hefur verið nauðsynlegur tími fyrir mig“ Blóðgaði dómara Eru klárlega með gæði til að spila í efstu deild Þýskalands Tók við MVP-styttunni og skoraði svo 38 stig Finnur fyrir miklum létti: „Algjört andlegt rugl“ EuroBasket aftur í fjórum löndum og Spánn stefnir á áhorfendamet Utan vallar: Í reykjarmekki alsælunnar Voru með 0,2 prósent sigurlíkur þegar þrjár mínútur voru eftir en unnu samt „Kemur væntanlega risastórt tómarúm“ Lygilegur endurkomusigur Indiana í MSG Sjáðu magnaðar myndir úr klefa Stjörnumanna Valinn verðmætastur eftir besta tímabil í sögu félagsins „Körfuboltaguðirnir voru búnir að ákveða“ Ægir valinn verðmætastur Sjá meira
Uppgjörið: Stjarnan - KR 4-2 | Frábær byrjun Stjörnunnar skildi KR-inga eftir í reyk Íslenski boltinn
Uppgjörið: Stjarnan - KR 4-2 | Frábær byrjun Stjörnunnar skildi KR-inga eftir í reyk Íslenski boltinn