Heilaskurðlæknirinn Carson styður Trump sem forsetaefni Guðsteinn Bjarnason skrifar 12. mars 2016 07:30 Ben Carson á blaðamannafundi með Donald Trump í gær. Nordicphotos/AFP
Heilaskurðlæknirinn Ben Carson, sem nýlega hætti við að sækjast eftir að verða forsetaefni Repúblikanaflokksins, hefur nú lýst yfir stuðningi við Donald Trump. „Donald Trump talar mikið um að gera Bandaríkin mikilfengleg,“ sagði Carson þegar hann skýrði frá þessu í gær. „Þetta var ekki bara tal, hann meinar þetta.“ Ríkisstjórinn Chris Christie hefur einnig lýst yfir stuðningi við Trump, og slíkt hið sama gerði Sarah Palin, sem sóttist eftir að verða forsetaefni flokksins árið 2008. Trump hefur mikla yfirburði gagnvart mótherjum sínum þremur, sem enn vonast til þess að verða forsetaefni flokksins. Forkosningatímabilið er ekki hálfnað, en Trump hefur tryggt sér stuðning 458 fulltrúa á landsþingi Repúblikanaflokksins í júlí. Hann þarf 1.237 atkvæði til að tryggja sér sigur. Ted Cruz er kominn með 359 fulltrúa, Marco Rubio 151 og John Kasich 54. Á þriðjudaginn kemur, sem nefndur er „litli ofurþriðjudagurinn“, verða forkosningar haldnar í nokkrum mikilvægum ríkjum: Flórída, Illinois, Missouri, Norður-Karólínu og Ohio.
Donald Trump Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Allt of margir með hugann annars staðar í umferðinni Innlent Baráttan hafin á TikTok: Traktor í Skeifunni, kaldar kveðjur og endurkoma Innlent Óeirðir í Valensía og kallað eftir afsögn ráðamanna Erlent Missti stjórn á bílnum þegar klæðingin umvafði dekkin Innlent Hætta sem sáttasemjarar í deilu Ísraela og Hamas Fréttir Ætlar 1750 kílómetra á þrektækjum á einni viku í minningu vina Innlent Yazan og fjölskylda leita að nýju húsnæði Innlent Mestu virkjanaframkvæmdir í sögu Grænlands framundan Erlent Bjartsýn eftir fund í Virginíu vegna Söndru sem afplánar 37 ára dóm Innlent Fleiri fréttir Mestu virkjanaframkvæmdir í sögu Grænlands framundan Óeirðir í Valensía og kallað eftir afsögn ráðamanna „Ég bjóst aldrei við að þetta myndi gerast“ Ákærður fyrir ráðabrugg um að ráða Trump af dögum Fundu morðingja puttaferðalangs fimmtíu árum síðar Samstaða í Færeyjum um að bjóða út Suðureyjargöng Hverfa aftur til fortíðar vegna gervihnattatruflana Rússa Pútín óskar Trump til hamingju Yfirmaður COP29 sagður hafa reynt að selja jarðefnaeldsneyti Ráðist á ísraelska stuðningsmenn í Amsterdam Trump velur starfsmannastjóra úr innstu röðum Spennuþrungin barátta um fulltrúadeildina Þrír handteknir vegna dauða Liam Payne Vilja banna 16 ára og yngri að nota samfélagsmiðla Fundu ellefu lík í yfirgefnum pallbíll Ávarp Bidens: „Þú getur ekki elskað nágranna þinn bara þegar þið eruð sammála“ Vill taka vantraustið fyrir strax Engin furða að verkafólk hafi snúið baki við Demókrataflokknum Ríkissjórn Scholz er sprungin Óskaði Trump til hamingju og ítrekaði friðsamleg valdaskipti Ríkisstjórn Scholz á barmi þess að springa Harris búin að hringja í Trump og undirbýr ávarp Óttast verulegt bakslag á mörgum vígstöðvum Baráttan um Bandaríkin: Donald Trump verður forseti, og hvað svo? Þjóðarleiðtogar kasta kveðju á Trump Trump lýsir yfir sigri: Guð hafi bjargað honum svo hann gæti bjargað Ameríku Andstæðingar þungunarrofs unnu í Flórída Donald Trump forseti á nýjan leik Mikill fögnuður hjá Trump-liðum Repúblikanar ná meirihluta í öldungadeildinni Sjá meira