Flóttamenn flykktust yfir landamæri Makedóníu Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 15. mars 2016 07:00 Flóttamaður heldur á barni yfir á áður en komið var inn í Makedóníu. Nordicphotos/Getty
Um það bil þúsund flóttamenn streymdu inn í Makedóníu eftir að hafa vaðið yfir stórfljót og fundið sér leið fram hjá girðingunni á landamærum Makedóníu og Grikklands. Áin sem um ræður er stór og strengdu flóttamennirnir reipi yfir hana til að styðja sig við er vaðið var yfir, sumir hverjir með börn í höndunum eða á bakinu. Þegar komið var til Makedóníu tóku hermenn á móti þeim og smöluðu upp í herbíla. Ekki er vitað hvert farið var með fólkið. Talskona lögreglunnar á staðnum sagði hins vegar að verið væri að gera ráðstafanir til að flytja fólkið aftur til Grikklands. Þá sagði hún einnig að lögregla og her hefðu skerpt á öryggisgæslu við landamærin. Fólkið hafði áður aðsetur í flóttamannabúðum í gríska bænum Idomeni ásamt 14.000 öðrum flóttamönnum, flestum frá Sýrlandi og Írak, en aðstæður þar hafa versnað undanfarið sökum rigningar. Mikið hefur fjölgað í búðunum frá því Makedóníumenn lokuðu landamærum sínum með girðingu.
Flóttamenn Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira