Körfubolti

Kristófer með níu stig og fimm fráköst er Furman komst í undanúrslit

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Kristófer lék sína fyrstu landsleiki á Smáþjóðaleikunum á Íslandi í fyrra.
Kristófer lék sína fyrstu landsleiki á Smáþjóðaleikunum á Íslandi í fyrra. vísir/andri marinó
Kristófer Acox og félagar í Furman eru komnir áfram í undanúrslit Suðurdeildarinnar í háskólakörfuboltanum í Bandaríkjunum eftir 16 stiga sigur, 80-64, á UNC Greensboro.

Kristófer átti fínan leik fyrir Furman og skoraði níu stig og tók fimm fráköst. Hann hitti úr þremur af fimm skotum sínum utan af velli og setti niður þrjú af fimm vítaskotum.

Kristófer og félagar leiddu nær allan leikinn og þegar liðin gengu til búningsherbergja var staðan 36-29, Furman í vil.

Furman gaf svo enn frekar í í upphafi seinni hálfleiks og náði fljótlega afgerandi forystu sem liðið hélt svo út leikinn.

Í dag mæta Kristófer og félagar ETSU í undanúrslit Suðurdeildarinnar og vinni liðið þann leik mætir það annað hvort Chattanooga eða Western Carolina í úrslitaleik á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×