Körfubolti

Jakob Örn með 22 stig í naumu tapi

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Jakob Örn Sigurðarson var næst stigahæsti leikmaður Boras í naumu tapi gegn Lulea í sænsku deildinni í dag en Jakob sendi leikinn í framlengingu þegar þriggja stiga karfa hans jafnaði metin undir lok venjulegs leiktíma.

Boras var sterkari aðilinn framan af í leiknum og leiddi í hálfleik 42-34 en leikmönnum BC Lulea tókst að ná forskotinu í fjórða leikhluta.

Var Lulea með þriggja stiga forskot þegar hálf mínúta var eftir af leiknum en Jakob jafnaði metin með þriggja stiga körfu þegar tíu sekúndur voru eftir.

Lulea var sterkari aðilinn í framlengingunni en Jakob fékk tækifæri til þess að endurtaka leikinn og jafna metin undir lok framlengingarinnar en skotið klikkaði.

Boras þurfti því að sætta sig við tap í kvöld en þetta er annar tapleikur liðsins í síðustu þremur leikjum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×