Skilar sér í mjög miklum vinsældum íþróttarinnar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. febrúar 2016 19:44
365 ehf. og Ölgerðin Egill Skallagrímsson gengu í dag frá samningi um nafnarétt efstu deilda Íslandsmóts karla og kvenna í knattspyrnu og er þessi nýi samningur til næstu þriggja ára. Pepsi-deildirnar verða því áfram í sviðsljósinu næstu árin eins og í sjö ár þar á undan. Þetta þýðir jafnframt að efstu deildir íslenska fótboltans munu bera nafnið Pepsi-deildin í að minnsta kosti heilan áratug. Guðjón Guðmundsson ræddi við þá Andra Þór Guðmundsson, forstjóra Ölgerðarinnar, og Sævar Freyr Þráinsson, forstjóra 365, í kvöldfréttum Stöðvar tvö. Pepsi-deildin mun áfram heita Pepsi-deildin eins og undanfarin ár en samningarnir voru undirritaðir í höfuðstöðvum KSÍ. „Þetta gefur okkur sýnileika, þetta gefur vörumerkinu vigt og stimplar okkur inn sem alvöru vörumerki. Ekki síst þá er þetta líka samfélagsverkefni fyrir ölgerðina því það er hluti af okkar samfélagsábyrgð að styrkja íslenska fótboltann," segir Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar. Kom til greina að breyta nafninu á deildunum? „Pepsi-deildin er orðin svo vel innstimpluð inn í huga þjóðarinnar en vissulega hugleiddum við það. Eftir gaumgæfilegan athugun ákváðum við að halda nafninu áfram," sagði Andri Þór. Umfangið og umfjöllunin um Pepsi-deildirnar verður meiri og ítarlegri hjá 365 miðlum en nokkru sinni. „Þetta er gríðarlega vinsæl íþrótt og mikilvægt fyrir okkur að geta boðið upp á þess leiki beint heim í stofu til fólks," sagði Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri 365. „Það hefur sýnt sig að aukin umfjöllun, bæði í sjónvarpi, fréttum og svo að vera með beinar útsendingarnar og Pepsi-mörkin, eru að skila sér í mjög miklum vinsældum íþróttarinnar. Við ætlum að halda áfram að styðja við íslenska fótboltann þannig og gefa enn frekar í," sagði Sævar Freyr.
Pepsi Max-deild karla Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti „Ég er oftast mjög rólegur“ Körfubolti „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ Fótbolti „Ef þig vantar stoðsendingu þá bara gefur þú á hann“ Sport Fleiri fréttir „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Sjá meira