Hlynur má aftur spila með liði Sundsvall Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. febrúar 2016 16:30 Hlynur Bæringsson. Vísir/Daníel
Íslenski landsliðsmaðurinn Hlynur Bæringsson er ekki lengur út í kuldanum og fær að spila næsta leik með Sundsvall Dragons í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta.Karfan.is segir frá því í dag að Hlynur Bæringsson megi mæta aftur á parketið frá og með deginum mánudeginum 1. febrúar. „Karfan.is ræddi við starfsmann sænska körfuknattleikssambandsins í dag þar sem starfsmaðurinn tjáði okkur að ekkert stæði lengur úti hjá Sundsvall og Hlynur og aðrir erlendir leikmenn liðsins mættu því fara að reima á sig skóna og leika með liðinu að nýju," segir í fréttinni á karfan.is Hlynur var, ásamt erlendu leikmönnum Sundsvall Dragons, settur í bann í síðustu viku þar sem félagið hafi ekki gert upp dómaralaun við sænska sambandið. Hlynur var fjarverandi á föstudagskvöldið þegar Sundsvall Dragons liðið tapaði 94-91 á heimavelli á móti botnliði ecoÖrebro. Sundsvall var bara með átta leikmenn á skýrslu í leiknum og slæmur fyrri hálfleikur (54-39 undir í hálfleik) varð liðinu að falli. Sundsvall Dragons saknaði Hlyns Bæringssonar mikið í leiknum en íslenski landsliðsfyrirliðinn er með 14,1 stig og 10,8 fráköst að meðaltali í leik í vetur. Hlynur var ennfremur með 18,3 stig og 13,3 fráköst að meðaltali í þremur síðustu leikjum sínum fyrir bannið þar sem hann hitti úr 8 af 16 þriggja stiga skotum sínum. Næsti leikur Sundsvall í sænsku úrvalsdeildinni er á föstudaginn á móti Umeå BSKT sem datt niður í botnsætið þökk sé sigri ecoÖrebro liðsins í Sundsvall.
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Sló 24 ára gamalt met Kára Steins, aftur Sport Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum Fótbolti „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Enski boltinn Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Enski boltinn UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Íslenski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira