Tindastóll klárar tímabilið með tvo Kana Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 4. febrúar 2016 12:48 Gurley í leik með UMass árið 2007. Vísir/Getty
Anthony Isaiah Gurley er genginn til liðs við Tindastól og verður því annar Bandaríkjamaðurinn í liðinu en fyrir var Myron Dempsey. Dempsey gekk aftur til liðs við Tindastól í lok janúar eftir að félagið ákvað að rifta samningi Jerome Hill, sem gekk skömmu síðar til liðs við Keflavík.Sjá einnig: Dempsey kominn aftur á Krókinn Dempsey og Hill spila báðir sem miðherjar en Gurley er bakvörður sem spilaði síðast í Kanada en hefur einnig spilað í efstu deild í Ungverjalandi og Ísrael, sem og B-deildinni í Frakklandi. Hann spilaði með háskólaliði University of Massachusetts frá 2006 til 2011 þar sem hann var í stóru hlutverki. Íslenskum félögum er frjálst að semja við eins marga erlenda leikmenn og þau kjósa en þau geta þó verið með einn erlendan leikmann inni á vellinum hverju sinni. Þeir Dempsey og Gurley koma því til með að deila mínútum í hverjum leik. Kári Marísson, aðstoðarþjálfari Tindastóls, staðfesti í samtali við Vísi að nýi leikmaðurinn hafi komið til landsins í morgun og að hann verði með í hópnum þegar Tindastóll mætir Njarðvík á heimavelli í kvöld. Gurley spilaði síðast með Monton Miracles í Kanada en spilaði aðeins einn leik þar. Hann hóf tímabilið í Frakklandi þar sem ahnn skoraði 6,4 stig að meðaltali í fimm leikjum með Le Portel.
Dominos-deild karla Mest lesið PSG - Arsenal | Bikarinn sem beðið hefur verið eftir Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti Fleiri fréttir Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Sjá meira