Ægir með 31 stoðsendingu í Njarðvíkurleikjunum í vetur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. janúar 2016 14:15 Ægir Þór Steinarsson. Vísir/Anton
Ægir Þór Steinarsson og félagar í KR unnu Njarðvíkinga í þriðja sinn í Ljónagryfjunni í gær og líkt og áður var þessi eldfljóti bakvörður duglegur að spila uppi liðsfélaga sína. Ægir Þór var með 12 stig og 14 stoðsendingar í Njarðvík í gær og hitti úr 6 af 8 skotum sínum í leiknum. Ægir hefur alls gefið 31 stoðsendingu í leikjunum þremur á móti Njarðvík en það eru tveir deildarleikir og einn bikarleikur. KR hefur unnið þessa leiki með 18,7 stigum að meðaltali. Ægir hefur einnig skorað 28 stig og tekið 21 fráköst í leikjunum þremur. Það vekur athygli að Ægir er með 62 prósent skotnýtingu en náði þó ekki að skora þriggja stiga körfu í leikjunum. Ægir er líka með tíu fleiri stoðsendingar (31) en skot (21) í þessum þremur sannfærandi sigrum KR-liðsins á Njarðvíkingum. Framlag Ægis í varnarleik KR-liðsins er hér óupptalið en hann hélt Oddi Rúnari Kristjánssyni, leikstjórnanda Njarðvíkinga, í 3 stigum í leiknum í gær. Oddur var með fleiri tapaða bolta (4) en stig og nýtti aðeins 1 af 5 skotum sínum.Leikir Ægis á móti Njarðvík í vetur29 stiga sigur í deildinni í október, 105-76 7 stig, 10 fráköst, 9 stoðsendingar (hitti úr 3 af 7 skotum)16 stiga sigur í bikarnum í janúar, 90-74 9 stig, 5 fráköst, 8 stoðsendingar (hitti úr 4 af 6 skotum)11 stiga sigur í deildinni í janúar, 100-89 12 stig, 6 fráköst, 14 stoðsendingar (hitti úr 6 af 8 skotum)Samanlagt í leikjunum þremur á móti KR: 28 stig (9,3 í leik) 21 fráköst (7,0 í leik) 31 stoðsending (10,3 í leik) Hitti úr 13 af 21 skoti (62 prósent nýting)
Dominos-deild karla Mest lesið Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti England - Argentína | Messi mætir ensku ljónunum í fyrsta sinn Fótbolti „Dapurlegt tímabil í sögu ríkis okkar“ Fótbolti Bónorð strax eftir leik í Garðabæ Íslenski boltinn „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti „Hann var farinn að spyrja hvenær við ætluðum að flytja til Íslands“ Íslenski boltinn Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Enski boltinn Tvenna Daníels tryggði Víkingi meira en hundrað milljónir Fótbolti „Dramatískasta viðureignin í alþjóðafótboltanum“ Fótbolti Fleiri fréttir Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Sjá meira