Níu hafa látist það sem af er ári Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 30. júlí 2015 07:00 Langar biðraðir myndast nú við Ermarsundsgöngin vegna mikils eftirlits. nordicphotos/afp
Franska lögreglan sendi liðsauka að Ermarsundsgöngunum í gær til að stemma stigu við fjölda flóttamanna sem reyna að komast til Bretlands um göngin. Níu flóttamenn sem hafa reynt að komast til Bretlands gegnum Ermarsundsgöngin hafa látist það sem af er ári. Síðasti flóttamaðurinn sem bættist í hóp hinna látnu var súdanskur maður á þrítugsaldri sem varð fyrir flutningabíl þegar hann reyndi að komast inn í göngin. Talið er að allt að 37.000 flóttamenn hafi gert tilraun til þess að komast yfir til Bretlands á árinu. „Þetta ótrúlega flóttamannaástand hefur dramatískar afleiðingar. Ástandið í Calais endurspeglar ágreininginn og kreppuna sem eru nú að slíta í sundur samfélög sums staðar í heiminum,“ sagði Bernard Cazeneuve, innanríkisráðherra Frakklands, við blaðamenn í gær. Flóttamenn sem breska ríkisútvarpið, BBC, náði tali af sögðu það líklegast til árangurs að ráðast að göngunum í stórum hópum, allt að 400 í einu. Öryggisgæsla við göngin hefur verið stórefld upp á síðkastið. Girðingar hafa verið reistar og eftirlit með bílum sem ætla um göngin verið eflt. Eftirlitið hefur valdið því að biðraðir með allt að 3.600 bílum hafa myndast. Þá hafa flóttamenn klippt göt á girðingarnar.
Flóttamenn Mest lesið Kona réðst á pizzusendil sem vildi fá símann sinn aftur Innlent Inga Sæland hellti sér yfir Sigríði Andersen Innlent Rússar segja Selenskí aumkunarverðan trúð Erlent Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Borgin rukkar hestamenn og þeir hætta við reiðina Innlent Telur líkur á að starfslok Úlfars tengist útlendingapólitík Innlent Hvorki Pútín né Trump ætla á fund Selenskí Erlent Hestamenn láta tæpa hálfa milljón stöðva sig Innlent Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Innlent Alþjóðaglæpadómstóllinn lamaður vegna þvingana Bandaríkjanna Erlent Fleiri fréttir ESB tapar máli um samskipti von der Leyen og Pfizer-forstjóra Vill gera Gasa að „frelsissvæði“ Rússar segja Selenskí aumkunarverðan trúð Alþjóðaglæpadómstóllinn lamaður vegna þvingana Bandaríkjanna Loftárásir héldu áfram og segja enn harðari árásir framundan Hvorki Pútín né Trump ætla á fund Selenskí „Fátækasti forseti heims“ látinn Einn lifði rúmlega hundrað metra fall af og gekk eftir hjálp Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Tugir sagðir liggja í valnum eftir loftárásir Fingrafar leiddi til handtöku hálfri öld eftir morð Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“ Trump hitti Sýrlandsforseta í Sádi-Arabíu Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Tveir frambjóðendur myrtir á nokkrum dögum Hóta að standa í vegi „fallegs“ frumvarps Mætir ræningjunum í fyrsta sinn Segja ekki hvort Pútín ætli að hitta Selenskí Sakfelldur fyrir að hafa beitt konur kynferðisofbeldi Staðfesta ábyrgð Rússa á því að malasíska þotan var skotin niður Trump með verri ímynd á heimsvísu en Xi og Pútín Sláandi tölur um aflýst flug til Nuuk-flugvallar Málverk af Grænlandi undir stjórn Trumps vekur athygli „Táknrænt sterk“ forysta Grænlands hefst í dag Bandaríkjaforseti vill þiggja lúxusþotu frá Katar að „gjöf“ Sakar Rússa um að hafa brennt stærstu verslunarmiðstöð Póllands Leysa upp samtökin og leggja niður vopn Vopnahlé hélt í nótt og viðræðum fram haldið Láta bandarískan gísl lausan Sjá meira