Fer Þróttur í gegnum hálft mótið án þess að skora? Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 10. júlí 2015 06:30 Guðrún Jóna Kristjánsdóttir er þjálfari Þróttar. fréttablaðið/ernir
Þróttur tekur á móti Fylki í eina leik dagsins í Pepsi-deild kvenna. Fylkiskonur hafa rétt úr kútnum eftir erfiða byrjun og eru búnar að vinna tvo leiki í röð og eru auk þess komnar í undanúrslit Borgunarbikarsins. Það gengur öllu verr hjá Þrótti. Liðið hefur aðeins fengið tvö stig af 24 mögulegum og er í níunda og næstneðsta sæti deildarinnar. Vandamál Þróttar er augljóst þegar litið er á töfluna; liðið er aðeins búið að skora eitt mark í leikjunum átta. Það kom í 5-1 tapi fyrir Stjörnunni 30. júní síðastliðinn. Það sem gerir þetta markaleysi Þróttar enn neyðarlegra er að eina mark liðsins í deildinni til þessa var sjálfsmark leikmanns Stjörnunnar. Þróttarar eru því búnir að leika átta leiki án þess að skora sjálfar og gerist það aftur í kvöld fer liðið í gegnum alla fyrri umferðina án þess að skora mark. Það þarf að fara 29 ár aftur í tímann til að finna viðlíka markaleysi hjá liði í efstu deild kvenna. Það var sumarið 1986 þegar Haukar fóru í gegnum fyrstu níu umferðirnar án þess að skora. Raunar skoraði Haukaliðið ekki eitt einasta mark í deildinni það sumarið – í tólf leikjum. Þróttarar geta þó huggað sig við það að þrátt fyrir markaleysið eru stelpurnar ekki á botni deildarinnar en það er hlutskipti Aftureldingar sem er aðeins með eitt stig. Vinni Þróttur í kvöld lagar liðið stöðu sína verulega. Þróttarar verða þá aðeins einu stigi frá KR, sem er í 8. sætinu, og um leið aðeins einu stigi frá fallsæti. En til þess að það gerist þurfa leikmenn Þróttar að skora – þær geta ekki beðið mikið lengur með það.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti „Ég er oftast mjög rólegur“ Körfubolti Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Körfubolti „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ Handbolti „Ef þig vantar stoðsendingu þá bara gefur þú á hann“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Körfubolti Fleiri fréttir Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Sjá meira