Almenningur kom Albatross í bíó Guðrún Ansnes skrifar 16. júní 2015 11:00 Hópurinn snaraði í sjálfu á forsýningaferðalagi sínu um landið. Hér eru Logi Ingimarsson tökumaður, Snævar S. Sölvason, leikstjóri og handritshöfundur, Guðgeir Arngrímsson framleiðandi og Ævar Örn Jóhannsson leikari og meðframleiðandi. Mynd/Aðsend „
Þessi mynd er eins local og hún getur orðið, stútfull af heimamönnum eins og Pálma Gestssyni og Mugga, pabba tónlistarmannsins Mugisons, ásamt vinum og vandamönnum úr öllum áttum,“ segir Ævar Örn Jóhannsson, aðalleikari og framleiðandi kvikmyndarinnar Albatross, sem forsýnd verður í kvöld í Hátíðarsal Háskólabíós og lokar þannig forsýningarhring hópsins. „Við fjármögnuðum myndina á Karolina fund og margar hendur unnu mikið verk, því nú er hún komin í bíó og við viljum þakka fyrir okkur með því að bjóða þeim sem stóðu við bakið á okkur með því að blása til forsýninga,“ útskýrir Ævar. Nú þegar hefur hópurinn haldið tvær sýningar í Bolungarvík, þar sem tökur fóru fram, og mættu fjögur hundruð manns til að sjá myndina og rass í hverju sæti eins og Ævar lýsti. Í gærkvöldi var myndin svo sýnd á Akureyri. „Þetta er fólkið sem gerði okkur kleift að koma myndinni á koppinn og heldur hvað mest með okkur,“ útskýrir Ævar og bætir við að að enginn hafi komið með stóra summu heldur hafi fjölmörg smærri framlög safnast saman. „Við erum náttúrulega nýgræðingar í þessum bransa og kom á daginn að ekki er eins auðvelt að fjármagna svona eftirvinnsluferli til að koma myndum í bíó eins og við héldum, verandi með engin sambönd og svoleiðis,“ útskýrir Ævar og heldur áfram: „Eftir dálitla biðstöðu ákváðum við að setja þetta í hendur almennings og þá skotgekk þetta.“ Gekk reyndar svo vel að safnaðist töluvert umfram markmiðið. „Sá peningur var þá nýttur til að vinna tónlistarmyndband úr myndinni, sem Halldór Gunnar Fjallabróðir sá um og fékk Sverri Bergmann til að syngja, svo nú höfum við tónlistarmyndband líka,“ sagði Ævar glaður í bragði. Myndin hefur fengið gríðarlega góð viðbrögð, en Ævar segir það ekki endilega að marka, þar sem flestir þeirra sem hafa séð myndina séu velunnarar hópsins. „Það verður spennandi að sjá hvernig almenningur tekur í þessa frumraun okkar, en myndin fer í almenna sýningu á föstudaginn, 19. júní,“ segir hann og bætir við að hvað taki við hjá þeim í framhaldinu velti dálítið á viðbrögðunum: „Þá sjáum við hvort þetta er eitthvað sem við eigum erindi í, ég veit að okkur langar alla að gera þetta aftur.“
Tengdar fréttir Sverrir Bergmann syngur titillag kvikmyndarinnar Albatross Albatross er nýtt lag frá Sverri Bergmann og er það titillag kvikmyndarinnar Albatross sem frumsýnd verður 19. júní. 15. júní 2015 16:00 Mest lesið „Hélt það væri ekki hægt að bjarga mér“ Lífið Fyrsta jarðarförin í Flatey í 69 ár varð undursamlegt ævintýri Lífið Shakira söng fyrir milljónir á Copacabana Tónlist Krakkatía vikunnar: Kirkjur, Gljúfrasteinn og nornahár Lífið „Bíddu, þetta er satt. Ég er með átröskun“ Lífið Guðmundur og Erna eru gift Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Mörg þúsund „glataðir ljósmyndarar“ sóttu um Lífið Fögnuðu nýrri líkamsræktarstöð í Grímsbæ Lífið „Ef þú ætlar að vera með samviskubit, hafðu þá samviskubit yfir réttu hlutunum“ Lífið Fleiri fréttir Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Patrick Muldoon er látinn Endurlífguðu Kilmer með gervigreind fyrir fornleifamynd „Þetta pólýsamband er orðið að mormónahjónabandi“ Cruise tekur á loft í þriðja sinn Gaylord Focker deyr ekki drottni sínum Joy Harmon er látin Höfði í stóru hlutverki í æsispennandi stiklu Tæplega helmingur tilnefndra leikara til Eddunnar erlendur Leikarinn Michael Patrick látinn eftir baráttu við MND Ólétt af fyrsta barni ári eftir andlát fyrrverandi Rúrik í næstvinsælustu Netflix mynd í heimi Hugmyndir að hámhorfi um páskana Sjá meira
Sverrir Bergmann syngur titillag kvikmyndarinnar Albatross Albatross er nýtt lag frá Sverri Bergmann og er það titillag kvikmyndarinnar Albatross sem frumsýnd verður 19. júní. 15. júní 2015 16:00