Myndir segja sögur Magnús Guðmundsson skrifar 19. maí 2015 09:30 Halldór Björn með verk Kjarvals þar sem segir frá uppnáminu sem Loki olli í veislu guðanna með slúðri og vitleysisgangi. Visir/GVA
Næstkomandi föstudag verður opnuð í Listasafni Íslands sýningin SAGA Þegar myndirnar tala. Allsérstæð sýning á verkum íslenskra listamanna sem var fyrst sýnd í Kunsthalle Recklinghausen og heldur héðan í Samtímalistasafnið í Tallinn í Eistlandi. Halldór Björn Runólfsson er annar tveggja sýningarstjóra og hann segir þetta verkefni hafa í raun hafist fyrir um tveimur árum. „Það er haldin gríðarlega stór leiklistarhátíð á hverju sumri þarna í Recklinghausen og safnið þar hefur verið samhliða með þematískar sýningar á hverju ári. Að þessu sinni var leitað til okkar með að taka virkan þátt í sýningunni. Við settumst yfir þetta ásamt Norbert Weber sýningarstjóra frá þeim og vorum almennt á því að fara ekki þessa hefðbundnu landslagsnálgun frá Íslandi. Við ákváðum að fara frekar þá leið að verkin segðu sögu og út frá því fórum við að velja inn listamenn. Þetta er í raun myndlist sem segir frá.“ Halldór Björn segir að þessi nálgun geri sýninguna óneitanlega nokkuð sérstaka og fjölbreytta í senn. „Þarna er til að mynda að finna eitt af öndvegisverkum Kjarvals, magnað frásagnarverk sem safnið eignaðist fyrir tveimur árum. Þetta er verk sem kallast Lokasenna og segir frá því þegar Loki mætir í veislu til guðanna og hleypir þar öllu í bál og brand með slúðri og stælum. Svo er reyndar eitt verk eftir þýskan listmálara og er það elsta málverkið sem til er af Þingvöllum málað árið 1862. Við erum reyndar með stóra ljósmyndaprentun af frumverkinu sem er stórt og viðkvæmt fyrir ferðalög. En það er eftir þýskan málari að nafni Johann Heinrich Hasselhorst sem var hér á ferð og hitti Sigurð málara og varð mjög uppnuminn af samtali við hann. Sigurður sagði honum frá Þingvöllum og þar með var hann rokinn af stað en þetta er einn þekktasti 19. aldar málari Þýskalands.Halldór Björn við verk Gabríelu Friðriksdóttur sem er á meðal fjölmargra nútímaverka í sýningunni. Visir/GVAEn svo erum við nú aðallega í nútímanum. Erum með frábært verk eftir Hrafnkel Sigurðsson. Rokkverkið Mercy eftir Ragnar Kjartansson. Gabríela Friðriksdóttir er með risastórt verk – magnaða innsetningu. Hulda Hákon og Ólafur Elíasson eru bæði með leiftrandi skemmtileg verk sem segja sögur úr efnahagshruninu, og svo mætti lengi telja enda eigum við Íslendingar ógrynni af frábærum myndlistarmönnum.“ Halldór Björn fer fögrum orðum um íslenska myndlistarmenn í dag og því er ekki úr vegi að forvitnast um afstöðu hans til þeirra þungu orða sem myndlistarrýnir RÚV lét falla frá Feneyjum í síðustu viku. „Mér finnst þetta nú gróflega ályktað og hrekk við þegar ég heyri svona lagað. Því miður komst ég ekki til Feneyja í ár en hef eins og aðrir reynt að fylgjast með og skoða úr fjarska. Mér sýnist moska Christoph Büchel gott verk en það gefur þó ekkert tilefni til þess að láta falla svona hrokafullan sleggjudóm. Ég ætla bara að líta á þetta sem einhvern bölvaðan misskilning. Ég vil frekar hvetja fólk til þess að koma hingað á Listasafn Íslands og sjá allt það góða sem íslensk myndlist hefur að bjóða. Þegar sýningin SAGA verður opnuð þá byrja myndirnar að tala.“
Listahátíð í Reykjavík Menning Mest lesið Selur íbúð með náttúruparadís í bakgarðinum Lífið Tom Cruise hrasar á síðasta snúning Gagnrýni Heldur sér við efnið og burt frá efnunum Tónlist Mátti eiginlega ekki hósta því þá myndi hann kremja hann Lífið Garðar Gunnlaugs og Fanney Sandra flytja á Selfoss Lífið Vinsælasta ABBA sýning heims kemur til Íslands Lífið samstarf Skjaldborg í átjánda sinn: „Ef maður býr á svona stað og vill eitthvað þá verður maður að hafa fyrir því sjálfur“ Menning Ævintýralegur sumarfögnuður í Haukadal Lífið Harry Potter leikari tekur aftur við hlutverki sínu Lífið Brynjar skiptir Aroni út Lífið Fleiri fréttir Hildur í aðalhlutverki á Listahátíð í Reykjavík Skjaldborg í átjánda sinn: „Ef maður býr á svona stað og vill eitthvað þá verður maður að hafa fyrir því sjálfur“ Verðlaunaleikstjóri leikstýrir jólasýningu Þjóðleikhússins Krimmi Elizu Reid á toppnum annan mánuðinn í röð Áslaug Arna, Dóri DNA og Frikki Dór í listapartýi Þjóðin virðist tengja við streituna Birta Sólveig fer með hlutverk Línu Langsokks Emilíana og Víkingur Heiðar meðal tólf tilnefndu Listrænn stjórnandi Bolshoj-ballettsins til margra áratuga látinn Ungfrú Ísland með flestar tilnefningar Stendur fyrir auðmannsgleði í Elliðaárdal Eliza Reid efst á bóksölulistanum Opnaði sumarið með sólríkum stæl Eitt merkilegasta verk 21. aldarinnar á Íslandi Blautir búkar og pylsupartí Mæðgin á stóra sviðinu í Feneyjum með íslenskan arkitektúr Sjá meira
Skjaldborg í átjánda sinn: „Ef maður býr á svona stað og vill eitthvað þá verður maður að hafa fyrir því sjálfur“ Menning
Skjaldborg í átjánda sinn: „Ef maður býr á svona stað og vill eitthvað þá verður maður að hafa fyrir því sjálfur“
Skjaldborg í átjánda sinn: „Ef maður býr á svona stað og vill eitthvað þá verður maður að hafa fyrir því sjálfur“ Menning