Ekki klappað í stein Guðsteinn Bjarnason skrifar 12. maí 2015 00:01 Michael Roth Evrópumálaráðherra Þýskalands er í stuttri heimsókn hér á landi. fréttablaðið/Gva „
Okkur þykir þetta leitt,“ segir Michael Roth, Evrópumálaráðherra þýsku stjórnarinnar, þegar hann er spurður út í bréf Gunnars Braga Sveinssonar utanríkisráðherra til Evrópusambandsins, þar sem segir að ríkisstjórn Íslands líti ekki lengur svo á að Ísland eigi í aðildarviðræðum við sambandið. „Við hefðum vissulega viljað að Ísland yrði öflugur og fullgildur aðili að Evrópusambandinu, en okkur ber að virða þessa ákvörðun,“ segir Roth. Spurður hvort hann skilji þetta svo að Ísland hafi einungis gert tímabundið hlé á viðræðum, segir hann að ákvörðun um það sé í höndum Íslendinga. „Í lýðræðisríkjum er ekkert klappað í stein. Við gerum okkur vissulega vonir um að kannski eftir nokkur ár verði aðild að ESB aftur sett á dagskrá. Ef við getum gert eitthvað til þess að viðhorfin gagnvart ESB verði jákvæðari, þá myndi það gleðja mig mjög.“ Roth er staddur í stuttri heimsókn hér á landi, bæði til þess að styrkja enn frekar tengsl Íslands og Þýskalands og einnig til að ýta undir samskipti Íslands við Evrópusambandið. „Milli Íslands og Þýskalands er löng hefð fyrir góðum og vinsamlegum samskiptum,“ segir Roth. „Og þótt ein ríkisstjórn skrifi bréf og hætti viðræðum, þá er framtíðarsýn Evrópusambandsins engan veginn úr sögunni. Þvert á móti. Ég er hingað kominn meðal annars til þess að kynna þann áhuga sem bæði Evrópusambandið og Þýskaland hafa á samskiptum við Ísland. Þar er það ekki stærð landsins sem skiptir máli og ég er viss um að Ísland hefur mikið fram að færa í Evrópu, alveg burtséð frá stöðu þess.“Of mikið talað Roth hefur haft í ýmsu að snúast í embætti sínu sem Evrópumálaráðherra í þýska utanríkisráðuneytinu. Meðal annars hefur það komið í hans hlut að styrkja tengsl Þýskalands við Grikkland í þeim hremmingum, sem gríska þjóðin hefur gengið í gegnum undanfarið. „Samskipti Grikklands og Þýskalands hafa áratugum saman verið mjög vinsamleg, bæði vegna þess að þýskir ferðamenn hafa mikið ferðast til Grikklands og vegna þess að í Þýskalandi búa 300 þúsund manns með grískar rætur. Þessi samskipti hafa hins vegar versnað töluvert í grísku efnahagskreppunni, en mig langar að leggja mitt af mörkum til þess að bæta þessi samskipti á ný.“ Grikkir hafa borið sig illa undan Þjóðverjum, sem hafa þótt sýna lítinn sveigjanleika gagnvart lítilli þjóð í miklum efnahagsvanda. Roth segir að í samskiptum ríkjanna hafi mikil mistök verið gerð af beggja hálfu. „Einmitt Þýskalandi, sem er stórt efnahagsveldi, ber skylda til að gæta sérstaklega að orðum sínum, ekki síst gagnvart smærra aðildarlandi sem nú gengur í gegnum mjög erfiða tíma. Margir íbúar Grikklands glíma við mikla erfiðleika, sérstaklega þó unga kynslóðin sem býr við alltof mikið atvinnuleysi. Við eigum að taka tillit til þess og sýna Grikkjum bæði virðingu og vinsemd.“ Hins vegar þurfi að hvetja Grikkland til þess að standa við gerða samninga og gera Grikkjum ljóst að það sé að miklu leyti undir þeim sjálfum komið hvort farsællega tekst til á endanum. Hann segir Þjóðverja hafa sýnt Grikkjum mikinn sveigjanleika: „Við höfum komið okkur saman um tiltekin markmið, en hvernig Grikkir ætla að ná þessum markmiðum er nú að miklu leyti undir þeim sjálfum komið. Tíminn líður og menn hafa talað of mikið en ekki tekið nóg af ákvörðunum. Þetta hefur áreiðanlega gert stöðuna verri, en Þýskaland er reiðubúið að veita þá aðstoð sem í þess valdi stendur.“Öllum til skammar Hvað varðar aðgerðir Evrópusambandsins gagnvart flóttafólki, sem streymir yfir Miðjarðarhafið í von um skjól í Evrópu, þá segir Roth ekkert aðildarríkja Evrópusambandsins vera þar undanþegið ábyrgð. „Þessi harmleikur, að svo margir hafi drukknað í Miðjarðarhafinu, er okkur öllum í Evrópusambandinu til skammar, öllum aðildarríkjunum, og nú á þetta fyrst og fremst að snúast um að bjarga mannslífum. Þar er athygli okkar núna. Staðan hefur einnig gert okkur ljóst að við þurfum að gera grundvallarbreytingar á stefnu okkar í málefnum innflytjenda, hælisleitenda og flóttamanna.“ Hann segir mörg aðildarríkjanna tilbúin til þess, en vandinn sé sá að ná þurfi samkomulagi sem öll aðildarríkin 28 geti fallist á. „Framkvæmdastjórn ESB leggur nú tillögur á borðið, og við eigum ekki að gefa okkur alltof langan tíma til þess að komast að samkomulagi. Þarna er ekki bara trúverðugleiki Evrópusambandsins í húfi, heldur trúverðugleiki allra aðildarríkjanna 28, því Evrópusambandið getur ekki komið sér upp breyttri og mannúðlegri flóttamannastefnu nema 28 ríkisstjórnir samþykki það. Þýskaland er að minnsta kosti reiðubúið til þess.“
Grikkland Mest lesið Alvarlegt slys á starfsmönnum á Íslandsmeistarmóti í rallycross Innlent Lést við tökur á Emily in Paris Erlent Níu sviptir leyfi meðan á annað hundrað kvartana hafa borist Innlent Ferðamaður neitaði að borga reikninginn og lét öllum illum látum Innlent Eigandi Sante segir málið gjörunnið: „Frelsið sigrar alltaf að lokum” Innlent Stungumanni í Bankastrætismálinu aftur stungið í steininn Innlent Leiðist „linnulaust væl” Íslendinga yfir réttu málfari Innlent „Forsetinn var aldrei óviðeigandi við neinn“ Erlent Gríðarlegt magn myndefnis til skoðunar hjá lögreglu Innlent Farþegar látnir sofa á gólfinu á hóteli í Keflavík Innlent Fleiri fréttir Lést við tökur á Emily in Paris „Forsetinn var aldrei óviðeigandi við neinn“ Fjöldi látinn eftir rútuslys í New York Gerðu húsleit á heimili fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa Trump Staðfesta hungursneyð á Gasa Thunberg og félagar borin út úr norska seðlabankanum Hótar Hamas með helvíti og gjöreyðingu Gasa-borgar Rússar vilja koma að því að tryggja öryggi Úkraínu Erik Menendez fær ekki reynslulausn Fella niður 64 milljarða sekt Trump Samþykktu ný hagstæðari kjördæmi í Texas Vara við hörmungum verði gert áhlaup á Gasaborg Stefna á fjöldaframleiðslu á eigin stýriflaugum Losun Kína dregst saman vegna uppgangs í sólarorku Líkamlegar refsingar hamla þroska og hafa áhættu í för með sér Handtekinn á Ítalíu vegna Nord Stream sprenginganna Rússar halda árásum áfram Ætla að stoppa farandfólk með svartri málningu Mega neita þeim aðgengi sem bera keffiyeh Hefur áhyggjur af gervigreind sem virðist sjálfsmeðvituð Engir hermenn í Úkraínu og enginn fundur með Pútín Kalla tugi þúsunda til herþjónustu Öflugasti sjónaukinn fann áður óþekkt tungl í sólkerfinu „Stríðin“ sex, stundum sjö, sem Trump segist hafa stöðvað Kirkjan í Kiruna komin á áfangastað Frambjóðandi sem ræddi um morð á hundi farinn í hundana Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Hondúras og Úganda samþykkja að taka við hælisleitendum Segist vilja komast til himna Ísraelar taki ekki annað í mál en lausn allra gísla Sjá meira