Hernaðaraðgerðir undirbúnar Guðsteinn Bjarnason skrifar 24. apríl 2015 07:00 Á Möltu voru bornir til grafar 24 flóttamenn sem drukknuðu eftir að bát þeirra hvolfdi út af ströndum Líbíu. Vísir/EPA
Meðal þess sem leiðtogar Evrópusambandsríkjanna ákváðu á neyðarfundi sínum í Brussel í gær var að láta undirbúa hernaðaraðgerðir gegn þeim, sem stunda smygl á flóttafólki yfir Miðjarðarhafið til Evrópu. Leiðtogarnir hyggjast einnig þrefalda það fjármagn, sem sett hefur verið í björgunar- og leitaraðgerðir í Miðjarðarhafinu. Þá er meiningin að létta að nokkru álaginu af þeim Miðjarðarhafsríkjum Evrópusambandsins, sem fengið hafa flesta flóttamenn til sín. Þetta verði gert með því að önnur aðildarríki ESB bjóðist til þess að taka við nokkur þúsund flóttamönnum. Áhersla verður lögð á að draga úr flóttamannastraumnum ásamt því að reyna að koma sem flestum þeirra, sem komist hafa yfir til Evrópu, aftur til síns heima. Evrópusambandið hefur verið harðlega gagnrýnt fyrir að bregðast seint og illa við vandanum, með þeim afleiðingum að þúsundir manna hafa drukknað í Miðjarðarhafinu. Meira en 35 þúsund manns hafa reynt að fara yfir Miðjarðhafið það sem af er árinu, og þar af hafa hátt á annað þúsund manns drukknað. Meðan á þessum fundarhöldum stóð voru 24 flóttamenn bornir til grafar á Möltu. Fólkið lét lífið þegar bát hvolfdi undan ströndum Líbíu nýverið.
Flóttamenn Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Nóg sé komið af Trump Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira