SÞ hvetja til öflugri aðgerða guðsteinn bjarnason skrifar 16. apríl 2015 07:00 Meira en 500 manns eru taldir hafa verið á bátnum sem hvolfdi, en einungis tókst að bjarga litlum hluta þeirra. nordicphotos/AFP
Óttast var að um 400 manns hefðu drukknað í gær út af ströndum Líbíu þegar skipi hvolfdi þar. Um borð voru hundruð flóttamanna, sem reyndu að komast ólöglega frá Afríku til Ítalíu. Hundruð þúsunda manna hafa á síðustu árum reynt að komast yfir Miðjarðarhafið á bátum eða skipum í von um að komast inn fyrir landamæri Evrópusambandsins. Fjölmargir hafa látið lífið, þar af meira en 500 það sem af er þessu ári. Þetta er meiri fjöldi en nokkru sinni fyrr. Federico Fossi, talsmaður Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna, segir nauðsynlegt að Evrópusambandið grípi til áhrifaríkari aðgerða til að tryggja öryggi fólks sem þarna hættir lífi sínu. Ekkert bendi til þess að í bráð muni draga úr flóttamannastraumnum þessa leið. „Enn er fólk að flýja styrjaldir og ofsóknir í löndum á borð við Sýrland, eða einræðisstjórnir í löndum á borð við Erítreu,“ segir Fossi í viðtali við breska útvarpið BBC. Fleiri mannréttindasamtök hafa skorað á Evrópusambandið að efna til markvissra björgunaraðgerða á Miðjarðarhafinu, frekar en að láta sér nægja reglubundið landamæraeftirlit á borð við það sem íslenska varðskipið Týr hefur tekið þátt í undanfarið.
Flóttamenn Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Nóg sé komið af Trump Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira