41 árs en samt gríðarlega mikilvægur fyrir Keflavíkurliðið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. mars 2015 06:00 Damon í leik á móti KR. Vísir/Vilhelm
Damon Johnson hélt upp á 41 árs afmælið sitt 1. mars síðastliðinn en það er ekki hægt að segja að afmælisdagurinn hafi hægt eitthvað á elsta leikmanni Dominos-deildarinnar. Damon hefur farið fyrir tveimur sigrum Keflavíkurliðsins síðan og séð til þess að liðið er ekki aðeins gulltryggt inn í úrslitakeppnina heldur á enn þá möguleika á því að vera með heimavallarrétt í átta liða úrslitunum vinni Keflvíkingar Hauka í lokaumferðinni á fimmtudaginn. Mikilvægi Damons fyrir Keflavíkurliðið er gríðarlegt og það kemur einstaklega vel fram í tölfræðinni í vetur. Damon hefur spilað 15 af 21 leik Keflvíkinga í deildinni á tímabilinu og er með 15,1 stig, 6,5 fráköst og 2,1 stoðsendingar að meðaltali á 27,4 mínútum. Þetta er mjög flott tölfræði hjá manni á fimmtugsaldri en það er fylgnin milli góðra leikja hans og sigurleikja Keflvíkinga sem er það athyglisverðasta við framgöngu þessa þrefalda Íslandsmeistara. Keflavík hefur unnið átta leiki sem hann hefur spilað og í þeim hefur Damon skorað 20,1 stig að meðaltali eða 10,7 stigum meira að meðaltali en í þeim sjö leikjum sem hafa tapast með hann innanborðs. Damon Johnson hefur skorað sextán stig eða meira í níu leikjum í deildinni í vetur og Keflavíkurliðið hefur unnið átta þeirra. Liðið er hins vegar aðeins með 25 prósent sigurhlutfall í þeim tólf leikjum sem Damon hefur annaðhvort ekki verið með eða skorað fimmtán stig eða minna. Damon glímdi við meiðsli um mitt tímabil en virðist nú kominn á ný í úrslitakeppnisform.Mikilvægi Damons Johnson fyrir Keflavíkurliðið:Damon í sigurleikjum (8)* Stig í leik 20,1 Skotnýting 50 prósent Fráköst í leik 6,9 Stoðsendingar í leik 2,4 Framlag í leik 21,9Damon í tapleikjum (7)* Stig í leik 9,4 Skotnýting 29 prósent Fráköst í leik 6,0 Stoðsendingar í leik 1,7 Framlag í leik 9,7*Tölfræði úr Dominos-deildinni
Dominos-deild karla Mest lesið Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina Sjá meira