Körfubolti

Jón Arnór og félagar með fullt hús stiga yfir jólin

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Jón Arnór Stefánsson og hans menn geta ekki hætt að vinna.
Jón Arnór Stefánsson og hans menn geta ekki hætt að vinna. vísir/epa
Jón Arnór Stefánsson og félagar hans í Valencia halda sigurgöngu sinni áfram í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta.

Valencia vann tiltölulega þægilegan sigur á UCAM Murcia, 65-54, í tólftu umferð spænsku deildarinnar í kvöld en staðan í hálfleik var 38-29 fyrir heimamenn.

Jón Arnór komst ekki á blað í kvöld en hann gaf tvær stoðsendingar á þeim tæplega 19 mínútum sem hann spilaði.

Valencia verður á toppnum yfir jólin en liðið er búið að vinna alla tólf leiki sína til þessa og er einum sigri á undan Real Madrid sem er búið að vinna ellefu og tapa einum.

Barcelona er ekki langt undan. Börsungar eru búnir að vinna tíu leiki og tapa einum en þeir spila tólfta leikinn sinn á morgun.

Jón Arnór og félagar fá ekkert frí yfir hátíðarnar en næsta umferð verður spiluð 27.-28. desember og svo er spilað strax aftur annan og þriðja janúar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×