Níu menn grunaðir um aðild að árásunum í París Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 24. desember 2015 12:53 Frá lögregluaðgerðum í París. vísir/epa
Lögregluyfirvöld í Belgíu hafa handtekið mann sem grunaður er um aðild að hryðjuverkaárásunum í París þann 13. nóvember síðastliðinn þar sem 130 manns létust. Alls liggja því níu menn undir grun nú um að hafa komið með einhverjum hætti að árásunum. Litlar upplýsingar hafa verið gefnar upp varðandi það hvaða hlutverk maðurinn, Abdoullah C, hafði í árásunum. Þó hefur lögreglan upplýst að Abdelhamid Abaaouad, sem talinn er einn af höfuðpaurum árásanna, hringdi í Abdoullah skömmu eftir að árásirnar voru gerðar en þeir voru frændur. Abaaoud lést í lögregluaðgerð í París þann 18. nóvember síðastliðinn ásamt frænda sínum Hasna Aitboulahcen sem dó einnig, en Aitboulahaen og Abdoullah töluðu nokkrum sinnum saman í síma bæði fyrir og eftir árásirnar. Fram kemur í frétt BBC að lögregluyfirvöld hafi ekki tilkynnt um handtöku Abdoullah strax þar sem þau vildu ekki gera hugsanlegum samverkamönnum viðvart en enn er leitað að Salah Abdeslam sem talinn er einn af lykilmönnunum á bak við árásirnar.
Hryðjuverk í París Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira