Bardagi ólíkur öllum öðrum hjá Gunnari Nelson

„Ég er helvíti góður,“ segir Gunnar, sultuslakur að venju er Fréttablaðið hittir hann á MGM Grand-hótelinu glæsilega þar sem bardagarnir fara fram. Gunnar er lítið öðruvísi núna en áður nema hann virkar ákveðnari.
„Síðustu tíu dagana gerir maður lítið annað en að bíða eftir stóra kvöldinu,“ segir Gunnar en hann tók góðar æfingabúðir með stærstu stjörnu kvöldsins, Íranum Conor McGregor, en þeir æfa báðir undir handleiðslu Írans John Kavanagh og hafa lengi gert.
Sjá einnig:Kavanagh: Veit ekki hvort orðið stress sé til á íslensku en Gunni kann það ekki
„Þetta voru líklega okkar bestu æfingabúðir hingað til. Við byrjuðum í Dublin og vorum þar í tvo mánuði áður en við héldum til Los Angeles. Fá smá sól. Þetta small helvíti vel saman hjá okkur,“ segir Gunnar en mikið var látið með að þeir væru farnir að lifa á Las Vegas-tíma strax í Dublin. Málið var nú ekki alveg svo einfalt.
Bíómyndir og síðbúnar æfingar
„Við vorum farnir að draga það helvíti lengi að fara að sofa á kvöldin. Þetta gerðist bara. Við vorum að horfa á bíómyndir eða djöflast í æfingasalnum seint um kvöld. Það hentaði okkur því vel að segja út á við að við værum á Vegas-tíma,“ segir Gunnar og glottir.
Undirbúningurinn að þessu sinni var óhefðbundinn að því leyti að nýr maður kom inn í þjálfarateymið til að hjálpa þeim. Sá heitir Ido Portal og sérhæfir sig í hreyfingum líkamans. „Hann hefur farið yfir alls konar hreyfingar með okkur og þetta opnar skrokkinn, sem og hugann, fyrir nýjum hreyfingum. Þetta hjálpaði helling og ég hafði líka mjög gaman af þessu. Mér leið vel eftir þessar æfingar og fann að þetta er eitthvað sem maður þarf. “
Sjá einnig:Jón Viðar: Sigur gerir Gunna heimsfrægan
Það hefur áður komið fram að Gunnar vaknaði í raun aftur til lífsins eftir tapið gegn Rick Story og mætti til leiks síðasta sumar í sínu besta formi. Hann er í enn betra formi núna og ætlar sér stóra hluti. Það veitir ekki af því Maia var svo sannarlega ekki að byrja í bransanum og vill, ólíkt öllum öðrum, fara með Gunnari í gólfið.
„Það hefur eiginlega aldrei gerst að menn vilji koma sérstaklega nálægt mér þannig að við fáum að sjá hluti í þessum bardaga sem hafa ekki sést áður í bardögum hjá mér. Ég verð með eitthvað skemmtilegt í pokahorninu fyrir hann,“ segir Gunnar en hann stefnir ótrauður á að verða heimsmeistari og vill senda sterk skilaboð í þessum bardaga.
„Þetta er eitt af skrefunum í áttina að titlinum sem ég vil vinna á næsta ári. Stefnan er að senda sterk skilaboð á þessu kvöldi.“
Tengdar fréttir

Maia: Ég er betri en Gunnar Nelson í gólfinu | Myndband
Mótherji Gunnars Nelson á laugardaginn er meira en til í að fara með bardagann í gólfið því þar hefur hann fulla trú á sjálfaum sér.

Attar: Gunnar stendur frammi fyrir risatækifæri
Bandaríski umboðsmaðurinn Audie Attar segir að Gunnar Nelson verði kominn í kjöraðstöðu í UFC-heiminum ef hann klárar Demian Maia með stæl.

Gunnar Nelson: Gæði sigranna skiptir meira máli en fjöldi þeirra
Gunnar Nelson átti þriðju bestu ummælin á fjölmiðladegi UFC 194 í gær.

Jón Viðar: Sigur gerir Gunna heimsfrægan
Jón Viðar Arnþórsson, formaður Mjölnis og góðvinur Gunnars Nelson, fylgir sínum manni hvert sem er og er að sjálfsögðu mættur til Las Vegas.

Kavanagh: Veit ekki hvort orðið stress sé til á íslensku en Gunni kann það ekki
Þjálfari Gunnars Nelson reiknar með að Gunnar berjist um heimsmeistaratitilinn næsta sumar.

Gunnar og Conor náðu vigt í brjálaðri stemningu | Myndband
Það var algjörlega geggjuð stemning í MGM Grand Garden Arena í kvöld er Írarnir tóku aftur yfir þennan sögufræga sal.

Gunnar: Conor sturlast pínulítið á hverjum degi
Gunnar Nelson ræðir bardagann við Demian Maia, Harley Davidson-hjólið, glæsihöllina í Las Vegas og hugarástand Conor McGregor.