Körfubolti

Elvar Már og félagar héldu út

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Elvar Már átti flottan leik í kvöld.
Elvar Már átti flottan leik í kvöld. mynd/víkurfréttir
Elvar Már Friðriksson átti fínan leik þegar Barry bar sigurorð af San Leo, 85-87, í bandaríska háskólakörfuboltanum í kvöld.

Elvar skoraði 15 stig en hann hitti úr sjö af 12 skotum sínum utan af velli. Njarðvíkingurinn tók einnig þrjú fráköst og gaf fjórar stoðsendingar.

Barry komst 19 stigum yfir, 63-82, þegar tæpar sex mínútur voru eftir en Elvar og félagar voru næstum því búnir að kasta sigrinum frá sér.

Liðsmenn Barry hittu ekki úr síðustu níu skotum sínum utan af velli en fimm síðustu stig liðsins komu af vítalínunni. San Diego átti frábæran endasprett en rann út á tíma og Barry fór með tveggja stiga sigur af hólmi, 85-87.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×