Körfubolti

Kanínur Arnars sterkari í framlengingunni

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Axel stóð fyrir sínu í kvöld.
Axel stóð fyrir sínu í kvöld. vísir/andri marinó
Arnar Guðjónsson stýrði Svendborg Rabbits til sigurs, 119-111, á Randers Cimbria í dönsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld.

Framlengingu þurfti til að knýja fram úrslit en þar reyndust Kanínurnar sterkari.

Staðan eftir venjulegan leiktíma var 99-99 en Svendborg vann framlenginguna 20-12 og leikinn þar með 119-111.

Axel Kárason stóð fyrir sínu í liði Svendborg en íslenski landsliðsmaðurinn skoraði átta stig og tók sex fráköst.

Kanínurnar hans Arnars eru í 4. sæti deildarinnar með 14 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×