Körfubolti

Þetta verður tekið fyrir í Körfuboltakvöldi í kvöld | Myndband

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Níunda umferð Dominos´s deildar karla í körfubolta lýkur í kvöld með tveimur leikjum og Kjartan Atli Kjartansson og félagar gera umferðina síðan upp í Körfuboltakvöldinu.

Körfuboltakvöldið er að venju á dagskrá klukkan 22.00 á föstudagskvöldum en sérfræðingarnir í kvöld eru þeir Fannar Ólafsson og Kristinn Geir Friðriksson sem báðir unnu Íslandsmeistaratitilinn nokkrum sinnum á ferlinum.

Haukar, Stjarnan, Þór og ÍR unnu öll leiki sína í gærkvöldi en Grindavík, Njarðvík, Höttur og Snæfell urðu að sætta sig við tap.

Það verður farið vel yfir alla þessa leiki en í kvöld spila síðan Keflavík og FSu í Keflavík og KR tekur á móti Tindastól í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.  

Hér fyrir ofan má sjá stutt myndband um hvað verður tekið fyrir í þættinum í kvöld.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×