Með Kristófer undir körfunni getur Furman komið liða mest á óvart Tómas Þór Þórðarson skrifar 6. nóvember 2015 12:30
Kristófer Acox, landsliðsmaður í körfubolta, og félagar hans í Furman-háskólanum, eru eitt þeirra litlu liða sem geta komið liða mest á óvart í bandarísku háskólakörfunni í vetur. Kristófer verður lykillinn að því. Þessu heldur blaðið Washington Post fram í ítarlegri úttekt sinni sem birt er á heimasíðu þessa risastóra blaðs.Sjá einnig:Rosalega erfitt að vera burtu frá mömmu Furman átti ekki góðu gengi að fagna á síðustu leiktíð, en liðið hafnaði þá í neðsta sæti suðaustur riðilsins með aðeins fimm sigra og þrettán tapleiki. „Það eru merki þess að 2016-tímabilið hjá Furman gæti verið eins og í fyrra þrátt fyrir að næstum allt liðið snúi aftur. Stundum virtust leikmennirnir ofurliði bornir,“ segir í úttekinni.Kristófer Acox spilaði vel á Smáþjóðaleikunum.vísir/andri marinóGetur orðið einn besti varnarmaðurinn Aftur á móti horfir til betri vegar ef litið er til síðustu sex leikjanna á síðustu leiktíð. Þar tók Furman varnarleikinn hressilega í gegn og vann fjóra af síðustu sex. „Lykillinn að þeim árangri var aggresívari varnarleikur. Mótherjarnir skoruðu 1,11 stig að meðaltali í sókn lengst af á tímabilinu gegn Furman en í síðustu tveimur leikjunum skoruðu mótherjar Furman ekki nema 0,96 stig í hverri sókn. Hvað breyttist?“Sjá einnig:Sautján frákasta kvöld hjá Kristófer Acox Það sem breyttist var að leikmenn Furman urðu ágengari í varnarleiknum og settu meiri pressu á skytturnar, að því fram kemur í úttekt Washington Post. Þeir gátu leyft sér að gera það því undir körfunni var Kristófer Acox með allt á hreinu. Hann varði körfuna af stakri snilld og endaði sem frákastahæsti leikmaður riðilsins með 7,5 fráköst að meðaltali í leik. „Furman-menn komu í veg fyrir auðveldar körfur eftir sóknarfráköst. Þeir náðu ríflega tveimur þriðju frákastanna þegar þeir voru í vörn og Kristófer Acox sýndi að hann getur orðið einn besti varnarmaður deildarinnar,“ segir í úttekt Washingon Post sem lesa má í heild sinni hér. Kristófer, sem spilaði sína fyrstu A-landsleiki á Smáþjóðaleikunum í sumar, er meira að segja á forsíðu kálfsins í blaðinu sem fjallar um litlu skólana sem geta komið á óvart.
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Fótbolti „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Enski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira