Körfuboltakvöld: Var búinn að heyra að hann væri með Excel-skjal | Myndband Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 31. október 2015 13:40
Stór frétt barst frá Sauðárkróki í gær þegar tilkynnt var um brottrekstur Pieti Poikola frá Tindastóli. Finninn, sem er einnig landsliðsþjálfari Dana, tók við Stólunum í sumar en entist aðeins fjóra leiki í starfi. Tindastóll vann fyrstu tvo leikina í Domino's deildinni en hefur tapað síðustu tveimur leikjum sínum, fyrir Þór frá Þorlákshöfn og Haukum.Sjá einnig: Pieti Poikola gagnrýnir „varnarkúltúr“ Domino's deildarinnar Brottrekstur Poikola var til umræðu í Domino's Körfuboltakvöldi í gær en sérfræðingar þáttarins voru gagnrýnir á skiptikerfi Finnans sem skiptir mönnum inn og út í tíma og ótíma. „Nei, þetta kemur ekki á óvart. Ég var búinn að spá því að það yrðu einhver vandræði þarna,“ sagði Kristinn Friðriksson um tíðindi gærdagsins. „Hann er að keyra ný kerfi í vörn og sókn og ég held að þetta hafi bara ekki lagst vel í mannskapinn,“ bætti Kristinn við en hann lék með og þjálfaði Tindastól á sínum tíma. Hermann Hauksson segir að skiptikerfið sem Poikola notast við virki einfaldlega ekki í deildinni hér á heima. „Ég er enginn aðdáandi þessa kerfis, þessara hröðu innáskiptinga. Þetta virkar í einhverjum deildum í Bandaríkjunum, í háskólaboltanum þar sem menn eru meiri hlutverkaleikmenn. Hérna á Íslandi þarftu bara miklu meiri tíma,“ sagði Hermann og Kristinn bætti við: „Ég var búinn að heyra að hann væri með Excel-skjal með innáskiptingum. Þetta gengur bara ekki upp.“Innslagið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.
Dominos-deild karla Tengdar fréttir Körfuboltakvöld: Var með smjörfingur en er kominn með Uhu á puttana | Myndband Ragnar Nathanaelsson átti stórleik í sigri Þórs á FSu. 31. október 2015 12:23 Mest lesið PSG - Arsenal | Bikarinn sem beðið hefur verið eftir Fótbolti Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti Fleiri fréttir Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Sjá meira
Körfuboltakvöld: Var með smjörfingur en er kominn með Uhu á puttana | Myndband Ragnar Nathanaelsson átti stórleik í sigri Þórs á FSu. 31. október 2015 12:23