Körfubolti

Keypti kynlífsþjónustu fyrir leikmenn sína

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
McGee fagnar hér í leik með leikmanni sínum.
McGee fagnar hér í leik með leikmanni sínum. vísir/getty
Einn besti körfuboltaháskólinn í Bandaríkjunum, Louisville, er í sviðsljósinu eftir að upp komst að fyrrum þjálfari liðsins hefði greitt fyrir kynlífsþjónustu til handa leikmönnum.

Fyrrum þjálfarinn, Andre McGee, sá til þess að erótískir dansarar mættu í partí hjá leikmönnum liðsins. Þar dönsuðu þær fyrir drengina og veittu þeim kynlífsþjónustu.

Ein af stúlkunum sem var ráðin í þessi teiti hefur nú stigið fram og sagt frá því sem gekk á. Hún segir að þjálfarinn hafi greitt henni 1,2 milljónir króna fyrir að koma með stelpur í teitin á árunum 2010 til 2014.

Tveir fyrrum leikmenn liðsins hafa staðfest þessa frásögn og einn bætti við að McGee hefði gefið sér bunka af eins dollara seðlum til að gefa stúlkunum.

Aðalþjálfari liðsins, Rick Pitino, segist ekki hafa haft hugmynd um þetta né hafi nokkur af hans leikmönnum eða starfsliði heyrt af þessum partíum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×