Hafa tapað öllum leikjunum en eru samt með bestu vörnina Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. október 2015 11:30 Viðar Örn Hafsteinsson þjálfari og Tobin Carberry. Vísir/Stefán
Tölfræði segir sjaldan alla söguna og stundum bara allt aðra sögu eins og í tilfelli nýliða Hattar í fyrstu þremur umferðum Domino´s deildar karla í körfubolta. Hattarmenn sitja á botni deildarinnar eftir þrjá leiki þar sem þeir hafa tapað fyrir Njarðvík, Grindavík og Snæfelli í fyrstu þremur umferðum tímabilsins. Höttur er án stiga eins og hinir nýliðarnir í FSu en Hattarmenn hafa verra stigahlutfall og sitja því í botnsætinu. Höttur er hinsvegar með bestu vörnina samkvæmt tölfræðinni því liðið hefur fengið fæst stig á sig að meðaltali í leik af öllum tólf liðum deildarinnar. Höttur hefur fengið á sig 224 stig í þessum þremur leikjum eða aðeins 74,7 stig að meðaltali í leik. Hér munar vissulega um það að Snæfellingar skoruðu bara 62 stig á þá í síðasta leik en stigin 62 dugðu engu að síður Hólmurum til að taka öll stigin með sér heim. Vörn Hattarmanna hefur verið einstaklega öflug í fyrri hálfleiknum þar sem liðið hefur enn ekki fengið á sig 100 stig. Mótherjar Hattar hafa skorað 99 stig í fyrri hálfleik í leikjunum þremur eða 33,3 að meðaltali í leik. Snæfell er með næstbestu vörnina (76,7 stig á sig í leik) og KR-ingar eru síðan í þriðja sæti (79,0 stig á sig í leik). Það eru aðeins búnir þrír leikir og því er varla hægt að taka mikið á þeim en það breytir því ekki að það er afar sérstakt að liðið sem hefur fengið fæst stig á sig í leik sitji án sigurs í neðsta sæti deildarinnar.
Dominos-deild karla Mest lesið PSG - Arsenal | Bikarinn sem beðið hefur verið eftir Fótbolti Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti Fleiri fréttir Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Sjá meira