Enski boltinn

Neymar ekki á leið til United

Anton Ingi Leifsson skrifar
Neymar leikur með Barcelona á Spáni.
Neymar leikur með Barcelona á Spáni. vísir/getty
Sögusagnir fóru á kreik í morgun að Neymar, ein af stórstjörnum Barcelona, væri á leið til Manchester United. Umboðsmaður Neymar, Wagner Ribeiro, neitar þessum sögusögnum.

The Sun dagblaðið sagðist hafa heimildir fyrir því að Neymar væri á leið til enska risans, en þetta segir umboðsmaður hans vera bull og vitleysa.

„Það er ekkert. Hann á þrjú ár eftir af samningi sínum. Ensku blöðin eru tilgátukennd. Barcelona hefur aldrei íhugað að selja Neymar og hann er ánægður þar," sagði Ribeiro við GloboEsporte.

Neymar gekk í raðir Barcelona frá Santon árið 2013 fyrir háar fjárhæðir. Kappinn missir af opnunarleik Barcelona gegn Athletic Bilbao í spænsku úrvalsdeildinni á morgun vegna hettusóttar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×