Enski boltinn

Jafnt hjá Örebro í fallbaráttuslag

Anton Ingi Leifsson skrifar
Eiður Aron þegar hann lék með ÍBV.
Eiður Aron þegar hann lék með ÍBV. vísir/daníel
Eiður Aron Sigurbjörnsson og Hjörtur Logi Valgarðsson voru báðir í liði Örebro sem gerði 1-1 jafntefli gegn Halmstads BK á útivelli í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Martin Broberg kom örebro yfir eftir stundarfjórðung, en liðið er í bullandi fallbaráttu. Matthew Rusike jafnaði fyrir Halmstad stuttu eftir hlé.

Pär Ericsson kom Örebro aftur yfir á 58. mínútu, en tveimur mínútum síðar jafnaði Antonio Rojas metin. Lokatölur 2-2.

Eiður Aron og Hjörtur Logi spiluðu báðir allan leikinn fyrir Örebro sem er í næst neðsat sæti, tveimur stigum frá öruggu sæt. Halmstads er í þrettánda sætinu af sextán liðum. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×