Reikna með fjölmennum mótmælum í Aþenu í kvöld Atli Ísleifsson skrifar 15. júlí 2015 15:29 Nokkur fjöldi mótmælenda er þegar á staðnum og er viðbúnaður lögreglu mikill. Vísir/AFP
Lögregla í Grikklandi býr sig undir fjölmenn mótmæli fyrir framan þinghúsið í Aþenu í kvöld. Nokkur fjöldi mótmælenda er þegar á staðnum og er viðbúnaður lögreglu mikill. Grískur þingheimur mun greiða atkvæði um frumvörpin fjögur í kvöld, en þau eru forsenda þess að frekari neyðarlán berist. Verkföll opinberra starfsmanna hafa lamað höfuðborgina í dag, þar sem meðal annars starfsmenn almenningssamgangna, lyfjafræðingar og læknar hafa lagt niður störf. Mótmæli eru boðuð um hálf átta í kvöld að staðartíma, eða hálf fimm að íslenskum tíma, fyrir framan þinghúsið í Aþenu.Hefur ekki trú á samkomulaginu Alexis Tsipras forsætisráðherra vinnur nú hörðum höndum að því að tryggja stuðning við frumvörpin sem miða meðal annars að því að hækka eftirlaunaaldur, hækka virðisaukaskatt og að tryggja sjálfstæði hagstofu landsins. Tsipras hefur sjálfur sagt að hann hafi ekki trú á samkomulaginu sem náðist á mánudagsmorguninn í Brussel og hafa fjölmargir stjórnarþingmenn sagt að þeir ætli ekki að greiða atkvæði með frumvörpunum. Tsipras þarf því mögulega að treysta á stuðning stjórnarandstöðuþingmanna. Fastlega er búist við að frumvörpin verði samþykkt, en þingflokkar þriggja stjórnarandstöðuflokka hafa sagst ætla að greiða atkvæði með frumvörpunum.
Grikkland Tengdar fréttir Aðstoðarfjármálaráðherra Grikklands segir af sér Til harðra orðaskipta hefur komið á gríska þinginu í dag þar sem verið er að ræða samkomulagið sem gert var við lánardrottna á mánudag. 15. júlí 2015 13:09 Tregafullur Tsipras vinnur að stuðningi við frumvörp innan gríska þingsins Grískur þingheimur mun greiða atkvæði um frumvörpin fjögur í kvöld, en samþykkt þeirra er forsenda þess að frekari neyðarlán berist. 15. júlí 2015 10:58 Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Fleiri fréttir Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Sjá meira
Aðstoðarfjármálaráðherra Grikklands segir af sér Til harðra orðaskipta hefur komið á gríska þinginu í dag þar sem verið er að ræða samkomulagið sem gert var við lánardrottna á mánudag. 15. júlí 2015 13:09
Tregafullur Tsipras vinnur að stuðningi við frumvörp innan gríska þingsins Grískur þingheimur mun greiða atkvæði um frumvörpin fjögur í kvöld, en samþykkt þeirra er forsenda þess að frekari neyðarlán berist. 15. júlí 2015 10:58