Þór/KA skaut Valskonur niður á jörðina með stórsigri fyrir norðan Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. júlí 2015 20:04 Kayla June Grimsley skoraði tvö mörk í kvöld. Vísir/Ernir
Þór/KA endaði fjögurra leikja sigurgöngu Vals í deild og bikar með sannfærandi 5-0 sigri í leik liðanna í Pepsi-deild kvenna í kvöld. Þetta var frestaður leikur frá því úr 7. umferð en öll lið deildarinnar hafa nú spilað tíu leiki í Pepsi-deildinni í sumar. Þór/KA var ekki búið að vinna í síðustu fimm leikjum sínum í Pepsi-deildinni og fagnaði í kvöld sínum fyrsta sigri síðan 5. júní. Kayla June Grimsley skoraði tvö mörk fyrir norðanliðið í kvöld en hún var bara með eitt mark í níu fyrstu leikjum liðsins í sumar. Annars voru allar helstu markadrottningar Þór/KA á skotskónum í kvöld. Það er þannig óhætt að segja að Þór/KA hafi skotið Valskonur niður á jörðina eftir mjög gott hengi Hlíðarendaliðsins á undanförnu. Valur var búið að vinna þrjá deildarleiki í röð auk þess að tryggja sér sæti í undanúrslitum Borgunarbikarsins. Sandra María Jessen (31. mínúta) og Klara Lindberg (44. mínúta) skoruðu mörk Þór/KA í fyrri hálfleik og staðan var 2-0 í hálfleik. Þór/KA-liðið gekk endanlega frá leiknum með þremur mörkum á átta mínútna kafla um miðjan seinni hálfleik. Kayla June Grimsley skoraði þriðja markið 25 mínútum fyrir leikslok, fjórða markið skoraði síðan Sarah M. Miller á 71. mínútu eftir lagleg sókn og Kayla June Grimsley var ekki hætt því hún skoraði fimmta markið skömmu síðar. Þór/KA-liðið er enn ósigrað á heimavelli í Pepsi-deildinni í sumar (eina liðið ásamt toppliði Breiðabliks) en þetta var þó aðeins annar sigurinn hjá norðankonum því þrír heimaleikir liðsins í sumar hafa endað með jafntefli. Valsliðið er áfram í 3. sæti deildarinnar og Þór/KA náði ekki að komast upp úr 7. sætinu en er nú aðeins einu stigi á eftir Fylki og ÍBV sem eru bæði með sextán stig í 5. og 6. sæti. Upplýsingar um markaskorarar eru fengnar frá úrslit.net.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti „Ég er oftast mjög rólegur“ Körfubolti „Ef þig vantar stoðsendingu þá bara gefur þú á hann“ Sport „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ Handbolti Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Körfubolti Fleiri fréttir Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Sjá meira