Stjörnukonur aftur upp í annað sætið | Myndir Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. júní 2015 21:08 Ásgerður Stefanía Baldursdóttir, fyrirliði Stjörnuliðsins, skoraði tvö mörk í kvöld. Hér fagnar Anna María Baldursdóttir henni. Vísir/Ernir
Stjarnan minnkaði forskot Breiðabliks í fjögur stig á toppi Pepsi-deildar kvenna þegar liðið vann fjögurra marka sigur á Þrótti í kvöld, 5-1, þegar liðin mættust á Samsung-vellinum í Garðabænum í lokaleik áttundu umferðar.Ernir Eyjólfsson, ljósmyndari Vísis og Fréttablaðsins, var á leiknum í kvöld og náði þessum skemmtilegu myndum hér fyrir ofan. Stjarnan skoraði þrjú fyrstu mörk leiksins og var 3-1 yfir í hálfleik. Ásgerður Stefanía Baldursdóttir, fyrirliði Stjörnuliðsins, skoraði tvö mörk í kvöld en tvö fyrstu mörk liðsins skoruðu þær Ana Victoria Cate og Lára Kristín Pedersen. Það var síðan varamaðurinn Sigríður Þóra Birgisdóttir sem innsiglaði sigur Stjörnuliðsins þegar hún skoraði fimmta markið í uppbótartíma. Breiðablik er nú með 22 stig en Stjarnan er með 18 stig. Blikar hafa líka sjö marka forskot í markatölu. Selfoss skaust upp í annað sætið í gærkvöldi en Stjarnan hefur nú náð tveggja stiga forskoti á stöllur sínar af Suðurlandinu. Harpa Þorsteinsdóttir var ekki meðal markaskorara Stjörnuliðsins í leiknum í kvöld þrátt fyrir að spila mjög vel og eiga nokkrar góðar tilraunir en upplýsingar um markaskorara í leiknum og frammistöðu hennar mátti finna á vefsíðunni fótbolta.net. Þróttur var búið að ná í stig í tveimur síðustu leikjum sínum sem báðir enduðu með markalausu jafntefli en átti lítið í sterkt Stjörnulið í Garðabænum í kvöld. Þróttur skoraði samt í leiknum sitt fyrsta mark í Pepsi-deildinni i sumar en liðið skoraði ekki eitt einasta mark í fyrstu sex leikjum tímabilsins.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið „Hvernig getur þetta gerst á fótboltaleik?“ Fótbolti Ægir Þór óttaðist að ferlinum væri lokið Körfubolti Svíar syrgja handboltahetju: „Svo djöfullega ósanngjarnt“ Handbolti Messi keypti spænskt fótboltafélag Fótbolti Tyrkneska hlaupatilraunin mistókst Sport Vignir Vatnar sneri upp á Evrópumeistara Sport Alexander Helgi frá KR í Njarðvík Íslenski boltinn Cristiano Ronaldo ældi inn í klefa Fótbolti Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ Enski boltinn Mark Alberts ekki nóg og Crystal Palace upplifði sögulegt kvöld Fótbolti Fleiri fréttir Alexander Helgi frá KR í Njarðvík Stuðningsmenn kosta Þór og Víking hundruð þúsunda Gabríel Snær seldur til Svíþjóðar Launin ekki aðalatriði og bónus að hafa fjölskylduna nálægt „Ég get ekki breytt þessu“ Oliver keyptur til KA „Hleyp jafn hratt og Mikael“ Arnar sleit sin í hné og bíður svara varðandi framhaldið Hjartað brotið, hent eins og hverri annarri kúkableyju Ekki tapað fyrir Keflavík í 24 leikjum í röð „Þetta er bara löglegt mark sem er tekið af KA“ Segir ekkert vit í afsökunum Valsmanna Sjáðu öll mörkin úr fyrstu umferð Bestu deildarinnar „Dreymdi að ég myndi skora tvö“ „Ef hann lítur á þetta sem leikaraskap þá er hann á rangri hillu“ Uppgjörið: Fram - ÍA 3-3 | Chopart bjargaði stigi eftir rússibanareið Uppgjörið: KA - Stjarnan 2-3 | Flugu heim með stigin þrjú eftir fjörugan leik „Gáfum ódýr mörk“ „Frammistaðan verðskuldaði klárlega stig“ Áttu flug beint eftir leik og komust ekki í viðtöl „Sviðskvíðinn hvarf aldrei hjá lærisveinum mínum“ „Fannst þeir ekki eiga séns í okkur hérna í seinni hálfleik“ Uppgjörið: Valur - Þór Ak. 1-2| Nýliðarnir sóttu þrjú stig á Hlíðarenda Uppgjörið: KR - Keflavík 3-2 | Alexander Rafn fullkomnaði endurkomu KR-liðsins Uppgjörið: ÍBV - FH 1-1 | Tryggði stig í fyrsta leik „Deildin aldrei verið sterkari en í ár“ Bikarmeistararnir áfram eftir danskt sigurmark í lokin „Ekki gott fyrir hin liðin“ „Verður þetta ekki bara geðveiki?“ Segir að Ekroth verði að gera betur Sjá meira