Frönsku stelpurnar hefndu fyrir tapið fyrir tveimur árum og fóru í úrslit Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. júní 2015 20:27 Diandra Tchatchouang og félagar spila um gullið. Vísir/AFP
Franska kvennalandsliðið í körfubolta er komið í úrslitaleikinn á Evrópumótinu í Ungverjalandi eftir fimm stiga sigur á fráfarandi Evrópumeisturum Spánar í kvöld, 63-58. Spánn tryggði sér Evrópumeistaratitilinn fyrir tveimur árum með eins stiga sigur á Frökkum í úrslitaleiknum en nú náðu þær frönsku að hefna. Franska liðið hefur verið við toppinn á undanförnum Evrópumótum en frönsku stelpurnar unnu EM síðast 2009 en liðið fékk svo brons 2011 og silfur 2013. Frakkar mæta Serbíu í úrslitaleiknum sem fer fram á sunnudaginn. Spánn spilar við Hvíta-Rússland í leiknum um þriðja sætið. Frakkar lögðu grunn að sigrinum með frábærri byrjun á seinni hálfleiknum en Spánn var 31-29 yfir í hálfleik. Miðherjinn Sandrine Gruda var með 16 stig og 12 fráköst og leikstjórnandinn Céline Dumerc skoraði 10 stig en þær hafa báðar verið með liðinu í langan tíma. Alba Torrens skoraði 13 stig fyrir spænska liðið og Marta Xargay var með tíu stig. Spænska liðið þarf að horfa á eftir Evrópumeistaratitlinum en kvennalandsliðið hefur ekki varið titilinn síðan að sovéska landsliðið vann sautján keppnir í röð frá 1960 til 1991.
Körfubolti Tengdar fréttir Evrópumeistararnir sluppu með skrekkinn Spánn komst í undanúrslit Evrópumóts kvenna í körfubolta á dramatískan hátt og mætir Frakklandi sem lagði Rússland í kvöld. 25. júní 2015 20:32 Serbnesku stelpurnar í úrslitaleikinn á EM eftir spennuleik Serbía spilar til úrslita um Evrópumeistaratitilinn í körfubolta kvenna eftir tveggja stiga sigur á Hvíta-Rússlandi, 74-72, í fyrri undanúrslitaleiknum á EM í Ungverjalandi. 26. júní 2015 17:54 Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Fótbolti Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Enski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira
Evrópumeistararnir sluppu með skrekkinn Spánn komst í undanúrslit Evrópumóts kvenna í körfubolta á dramatískan hátt og mætir Frakklandi sem lagði Rússland í kvöld. 25. júní 2015 20:32
Serbnesku stelpurnar í úrslitaleikinn á EM eftir spennuleik Serbía spilar til úrslita um Evrópumeistaratitilinn í körfubolta kvenna eftir tveggja stiga sigur á Hvíta-Rússlandi, 74-72, í fyrri undanúrslitaleiknum á EM í Ungverjalandi. 26. júní 2015 17:54