Körfubolti

Unicaja tapaði í framlengingu gegn Barcelona

Jón Arnór Stefánsson skoraði 5 stig og átti 1 stoðseningar í leiknum.
Jón Arnór Stefánsson skoraði 5 stig og átti 1 stoðseningar í leiknum. vísir/getty
Jón Arnór Stefánsson og félagar hans í Unicaja Malaga þurftu að sætta sig við tap gegn Barcelona eftir framlengdan leik í undanúrslitum spænsku deildarinnar í körfubolta, 77-74.

Þetta var oddaleikur liðanna. Barcelona komst í 2-0 í einvíginu með tveimur sannfærandi sigrum, 91-60 og 91-70, og fáir áttu eflaust von á því að Unicaja myndi ná að knýja fram oddaleik.

Það gerði liðið hins vegar með tveimur frábærum sigrum á heimavelli, 89-84 og 77-66. Leikurinn í dag fór fram í Barcelona og staðan eftir venjulegan leiktíma var 72-72.

Unicaja náði aðeins að skora tvö stig í framlengingunni og því fór sem fór. Jón Arnór Stefánsson skoraði þessi tvö stig en hann var með 5 stig og 1 stoðsendingar í leiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×