Körfubolti

Fínn leikur Harðar dugði ekki til

Hörður Axel Vilhjálmsson.
Hörður Axel Vilhjálmsson. vísir/daníel
Hörður Axel Vilhjálmsson og félagar hans hjá Mitteldeutscher fengu óvæntan skell í kvöld.

Þá sóttu þeir lið Tigers Tübingen heim en Tígrarnir eru í mikilli fallbaráttu.

Það var ekki að sjá í kvöld því liðið lék við hvurn sinn fingur og valtaði yfir Mitteldeutscher, 75-54. Þriðji leikhlutinn gerði út um leikinn en hann unnu Tígrarnir 23-12.

Hörður Axel spilaði í 26 mínútur í kvöld og skoraði 13 stig. Hann var stigahæstur í sínu liði. Mitteldeutscher er í tólfta sæti úrvalsdeildarinnar þýsku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×