Holtavörðuheiði lokuð vegna slyss Stefán Árni Pálsson skrifar 12. apríl 2015 16:15 Mynd úr safni. Vísir/GVA
Holtavörðuheiði hefur verið lokað vegna umferðarslyss. Ófremdarástand skapaðist á heiðinni, að því er fram kemur í tilkynningu frá Landsbjörgu. Björgunarsveitir úr Borgarfirði og báðum Húnavatnssýslum hafa verið kallaðar á staðinn. Óveður er á heiðinni og lítið skyggni en talið er að átta til tíu bílar hafi lent í árekstri. Samkvæmt upplýsingum frá Landsbjörgu er aðeins vitað af einum slösuðum en meiðsli hans eru ekki talin alvarleg. Lögreglan og sjúkralið eru á vettvangi. Ekki liggur ljóst fyrir hversu margir bílar lentu saman upphaflega en vegna slæmra veðurskilyrða jókst fjöldi bíla í árekstrinum hratt; ökumenn sáu ekki handa sinna skil og óku inn í kösina. Björgunarsveitir munu vinna í því að leysa ástandið og færa fólk af heiðinni og verður það flutt í Staðarskála til að byrja með, að sögn Landsbjargar. Vegagerðin bendir fólki á að fara hjáleið um Bröttubrekku og Laxárdalsheiði.Uppfært klukkan 17.52: Verið er að vinna í að koma öllum niður af heiðinni og gengur sú vinna nokkuð vel. Samkvæmt upplýsingum frá Landsbjörgu er dráttarbílar komnir á svæðið sem munu draga óökufæru bíla af heiðinni. Um sex bíla er að ræða. 30-40 bíla lest var á leið norður og töluverður fjöldi tepptist vegna árekstranna en búið er að koma hlutum þannig fyrir að þeir komast fram hjá slysstaðnum og áfram norður.
Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Katla skelfur Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira