Körfubolti

Fimmti sigur Malaga í röð

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jón Arnór átti fínan leik fyrir Malaga í dag.
Jón Arnór átti fínan leik fyrir Malaga í dag. vísir/getty
Jón Arnór Stefánsson skoraði sjö stig fyrir Unicaja Malaga þegar liðið lagðið Movistar Estudiantes í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag.

Jón Arnór spilaði í rúmar 22 mínútur og tók einnig tvö fráköst og gaf tvær stoðsendingar. Hann setti niður eitt af þremur skotum sínum inni í teig og eitt af þremur fyrir utan þriggja stiga línuna.

Malaga situr í toppsæti deildarinnar með 24 sigra, einum sigri á undan Real Madrid þegar sex umferðir eru eftir af deildarkeppninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×