Unnu fjórtán mínútna kafla 30-10 en töpuðu samt Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. apríl 2015 11:30 Njarðvíkingurinn Stefan Bonneau. Vísir/Valli
KR-ingar eru komnir í 2-1 í undanúrslitaeinvígi sínu á móti Njarðvík í Domnios-deild karla í körfubolta eftir að þeim tókst að lifa af afar slæman kafla í þriðja leiknum í Vesturbænum í gærkvöldi. Njarðvíkingar sýndu allt annan og miklu betri leik en í fyrsta leik sínum í DHL-höllinni og fóru illa með deildarmeistarana á stórum kafla í fyrri hálfleiknum. KR-liðið komst í 5-0 eftir eina mínútu en Njarðvíkurvörnin hélt Íslandsmeisturunum síðan í aðeins tíu stigum næstu fjórtán mínútur leiksins. Njarðvíkingar unnu þessa fjórtán mínútur 30-10 og komust með því fimmtán stigum yfir, 30-15. Þá voru aðeins fimm mínútur og tuttugu sekúndur eftir af fyrri hálfleiknum. Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari KR, tók þarna leikhlé og náði að endurstilla sitt lið. Pavel Ermolinskij, sem lék á ný með liðinu í gær, skoraði sína fyrstu körfu í næstu sókn og KR-ingum tókst síðan að minnka muninn í fjögur stig fyrir hálfleik með því að vinna lokakafla hálfleiksins 18-7. KR minnkaði muninn í eitt stig fyrir lokaleikhlutann og KR-liðið vann síðan fjórða leikhlutann 27-18 og tryggði sér sigur og þar með með mikilvæga 2-1 forystu í einvíginu. Fjórði leikur KR og Njarðvíkur fer fram í Ljónagryfjunni í Njarðvík á miðvikudagskvöldið og verður sýndur beint á sportrás 365.
Dominos-deild karla Mest lesið Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti „Dapurlegt tímabil í sögu ríkis okkar“ Fótbolti Bónorð strax eftir leik í Garðabæ Íslenski boltinn „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Enski boltinn „Hann var farinn að spyrja hvenær við ætluðum að flytja til Íslands“ Íslenski boltinn Tvenna Daníels tryggði Víkingi meira en hundrað milljónir Fótbolti Balogun viðurkennir að inngrip Trumps hafi haft truflandi áhrif Fótbolti Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Fótbolti Fleiri fréttir Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Sjá meira