Körfubolti

Kanínurnar lutu í lægra haldi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Craid Pedersen.
Craid Pedersen. Vísir
Svendborg Rabbits tapaði í kvöld fyrir Horsens með 21 stigs mun í öðrum leik liðanna í undanúrslitum úrslitakeppni dönsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta, 65-86.

Craig Pedersen, landsliðsþjálfari Íslands, er þjálfari liðsins en Arnar Guðjónsson er aðstoðarþjálfari hans.

Kanínurnar komust í 1-0 forystu með því að vinna fyrsta leikinn í rimmunni í Horsens með átján stiga mun en liðið fékk svo vænan skell á heimavelli í kvöld.

Næsti leikur liðanna í rimmunni er á föstudagskvöldið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×